Borði
Velkomin, Gestur
Username Password: Remember me
Spjall um ævintýraklifur undir frostmarki.
  • Blaðsíða:
  • 1

TOPIC: Boulder-Ís í Klifurhúsinu

Boulder-Ís í Klifurhúsinu 16 sep 2011 23:41 #12150

Skrifað 16 sep 2011 23:41
Jæja, það var fámennt en góðmennt á fyrsta boulder-ís (Bís - þurrtólun) kvöldi vetrarins.

Mér skilst á ráðamönnum í KH að þar eigi hér eftir að vera opið til kl. 23 á miðvikudögum og munu áhugasamir fá að sveifla járnum þar eftir kl. 21 ca.
Rétt er að benda á að Bís-ið virkar bara eins og hefðbundin búldersession í KH, þ.e. maður þarf að vera með árskort eða kaupa sér skipti til að vera memm að sjálfsögðu.

Ennívei, þá kíktum við aðeins í dótakassann og settum upp slurk af ísaxa-gripum þar sem vantaði og er stór hluti af hellinum orðinn vel brúklegur fyrir þurrtólun. Meira verður sett upp næsta miðvikudag og vonandi verður meiri mæting þá.

Sjáumst með byssurnar í botni á miggudaginn!

Re: Boulder-Ís í Klifurhúsinu 17 sep 2011 16:19 #12151

Skrifað 17 sep 2011 16:19
Frábært framtak!! Var einmitt að þreifa fyrir mér í ísklifri síðasta vetur og í sumar. Klárlega kominn tími til þess að breyta til í KH og prófa þurrtólun.

Kveðja,
Jón Smári
  • Blaðsíða:
  • 1
tók: 0.26 sek