Borði
Velkomin, Gestur
Username Password: Remember me
Spjall um ævintýraklifur undir frostmarki.
  • Blaðsíða:
  • 1

TOPIC: Að byrja í ísklifri

Að byrja í ísklifri 11 ágú 2011 19:56 #12074

Skrifað 11 ágú 2011 19:56
ég er 17 ára og hef mikinn áhuga á að prófa þessa íþrótt.. En ég þekki engin sem stundar þetta, eru einhver námskeið eða eitthvað álíka tilþess að hjálpa manni af stað?

Re: Að byrja í ísklifri 12 ágú 2011 10:36 #12075

Skrifað 12 ágú 2011 10:36
Sæll Bergur

Á veturna þegar aðstæður leyfa þá hafa Íslenskir fjallaleiðsögumenn í samstarfi við Ísalp staðið að ísklifurnámskeiðum og fjallamennskunámskeiðum fyrir byrjendur.
Dagsetningar fyrir þau námskeið í vetur eru ekki komnar en endilega fylgstu með hérna á vefnum.
Að sækja þessi námskeið er frábær leið til þess að koma sér af stað.

Kv Dóri

Re: Að byrja í ísklifri 19 ágú 2011 20:43 #12092

Skrifað 19 ágú 2011 20:43
Svo má benda á björgunarsveitirnar líka. Nýliðaþjálfunin hjá björgunarsveitunum getur verið mjög góð undirstaða til þess að byggja frekari útivist á. Þar eru haldin mörg námskeið sem nýtast vel s.s. fyrsta hjálp, rötun og fjallamennska. Þar ættir þú líka að geta kynnst einhverjum ísklifrurum og ekki skemmir fyrir að láta gott af sér leiða.
  • Blaðsíða:
  • 1
tók: 0.18 sek