Borði
Velkomin, Gestur
Username Password: Remember me
Spjall um ævintýraklifur undir frostmarki.
  • Blaðsíða:
  • 1

TOPIC: Hrútsfjall

Hrútsfjall 25 apr 2011 12:26 #11760

Skrifað 25 apr 2011 12:26
Jæja

Gerðu þið eitthvað skemmtilegt um páskana?

Við vorum 3 sem að nýttum okkur veðurgluggann á laugardaginn og skelltum okkur á Hrútfjallstinda. Ferðafélagarnir voru þeir Helgi Egils, djassgúru og Robin hinn Norski. Leiðin sem við fórum er hryggur sem liggur frá Svínafellsjökli og endar á Vesturtindi. Leiðin gefur klassísku leiðinni upp Suðurhlíðina ekkert eftir í gæðum. Við völdum okkur þægilegustu leiðina upp hrygginn því að við vorum í kapphlaupi við veðrið. Ferðin upp á topp tók um 8 og hálfan tíma frá bílastæðinu við Svínafellsjökul. Niðurleiðin tókum 3 tíma.

Myndir inni á agust.smugmug.com

Kv. Ági
P4230145.JPG

Re: Hrútsfjall 25 apr 2011 16:32 #11764

Skrifað 25 apr 2011 16:32
Glæsilegt, verður gaman að sjá myndir af þessu. Freysi og Hemmi fóru eitthvað svipað hérna um árið. Helvíti hafið þið verið röskir samt!

Re: Hrútsfjall 25 apr 2011 22:52 #11765

Skrifað 25 apr 2011 22:52
Snöggir - já það er það sem við gerum ráð fyrir þegar ÍFLM gædar eru annars vegar!

Annars duglegir strákar!
picasaweb.google.com/ivarfinn

Re: Hrútsfjall 26 apr 2011 12:47 #11769

Skrifað 26 apr 2011 12:47
Við bröltum tveir, ég og Jósef, upp NNV hrygginn á Lambatind á Ströndum nú um páskana. Skemtileg leið á flott fjall. Mjög svipaður fílingur og NA hryggurinn á Skessuhornið.

400-450 hæðarmetrar af 2. gráðu snjó og íshöftum, léttu klettabrölti og snjósyllum. Allt klifrað á hlaupandi tryggingum.

Ari Trausti minnist á bók sinni 151 tindur að a.m.k. tvær ís/snjólænur hafi verið farnar á Tindindinn en það væri gaman að vita hvaða leiðir menn hafa verið að fara þarna. Flott fjall og fjöldinn allur af möguleikum á skemtilegum leiðum. Sama má líka eiginlega segja um öll hin fjöllin þarna í kring.

Myndir komast vonandi á netið við tækifæri.

Kveðja,

Bergur

Re: Hrútsfjall 26 apr 2011 18:52 #11771

Skrifað 26 apr 2011 18:52
Gaman að heyra af þessu Bergur, ég hef lengi ætlað að fara þarna upp einhverja lænuna á Lambatind, hlakka til að sjá myndir og ekki væri verra ef þið eigið "yfirlits" mynd sem sýnir leiðina.
kv, Gummi
www.climbing.is
  • Blaðsíða:
  • 1
tók: 0.38 sek