Borði
Velkomin, Gestur
Username Password: Remember me
Spjall um ævintýraklifur undir frostmarki.
  • Blaðsíða:
  • 1

TOPIC: Greining á "slysi/óhappi tengt ísskrúfum

Greining á "slysi/óhappi tengt ísskrúfum 08 feb 2011 14:08 #11357

Skrifað 08 feb 2011 14:08
Heil og sæl,

Ég hef nú ekki tjáð mig mikið hérna inni hjá ykkur en fylgst lengi með ykkur.

Fann áhugaverða grein varðandi frágang á ísskrúfum. Greining á "slysi/óhappi sem varð í Austurríki.

coldthistle.blogspot.com/2011/01/be-attentive-when-placing-ice-screws.html

Kveðja,
Jón Smári

Re: Greining á "slysi/óhappi tengt ísskrúfum 08 feb 2011 16:06 #11359

Skrifað 08 feb 2011 16:06
Fínasta grein. Ég hef einmitt vanið mig á það að setja "typpið" aftur niður þegar ég er búinn að setja inn skrúfuna einmitt til að koma í veg fyrir svona lagað.
Robbi

Re: Greining á "slysi/óhappi tengt ísskrúfum 09 feb 2011 08:54 #11373

Skrifað 09 feb 2011 08:54
Snilldar grein og takk f. linkinn....

Ég sé business tækifæri í þessu? Erum við ekki með nóg af hæfum verkfræðingum sem myndu vilja sýna snilli sína og hanna hina fullkomnu ísskrúfu? Gæti komið af stað góðum snjóbolta....

En ég hef alltaf vanið mig á það að setja inn typpið, ekki af því ég hugsaði út í þetta heldur bara af því mér fannst það eiga heima aftur á "rétttum" stað.

Annars gildir sú almenna regla alltaf í ísklifri.....ekki taka fall í leiðslu.

Himmi

Re: Greining á "slysi/óhappi tengt ísskrúfum 09 feb 2011 10:46 #11380

Skrifað 09 feb 2011 10:46
Ekki það þeir séu með typpalausnina hjá Grivel en gætu samt verið komnir á bragðið með eitthvað hérna:

vimeo.com/15051260
Kv,
Freysi

Myndasíðan mín: picasaweb.google.com/freskur/

Re: Greining á "slysi/óhappi tengt ísskrúfum 09 feb 2011 13:03 #11384

Skrifað 09 feb 2011 13:03
Í greininni á netinu er farið í Grivel speedy og þar fer einmitt greinarhöfundur í það að hann myndi frekar vilja, af tvennu illu, að línan hjá honum krækist í plast haldfangið á Grivel skrúfunni heldur en hörfðum járnhausnum á BD skrúfunni.

Stevie alltaf flottur....

kv.Himmi
  • Blaðsíða:
  • 1
tók: 0.30 sek