Borði
Velkomin, Gestur
Username Password: Remember me
Spjall um ævintýraklifur undir frostmarki.
  • Blaðsíða:
  • 1

TOPIC: Ísfestival 2011

Ísfestival 2011 01 feb 2011 10:04 #11324

Skrifað 01 feb 2011 10:04
Nú styttist óðum í ísfestivalið og hafa helstu upplýsingarnar verið settar inná atburðinn.

Mikilvægt er að þeir sem ætla að mæta greiði fyrir gistinguna fyrir þriðjudaginn 8. feb. og ekki hafa áhyggjur, ef þetta frestast eða leggst af þá fá að sjálfsögðu allir endurgreitt.

Er ekki kominn góður spenningur fyrir þessu? Þrátt fyrir að veðurguðirnir hafi ausað úr sínum hitabrunni yfir okkur í janúar stefnir veðrið í frost á ný.

Jón sagði mér að það sé enn snjór í fjöllum og ætlaði að kíkja á aðstæður í dag, læt ykkur vita.
kv, Gummi
www.climbing.is

Re: Ísfestival 2011 02 feb 2011 11:14 #11325

Skrifað 02 feb 2011 11:14
Já, klárlega gríðarlegur spenningur fyrir þessu.
Spennandi að sjá hvað ískönnunarleiðangurinn gefur af sér.

Re: Ísfestival 2011 06 feb 2011 23:08 #11341

Skrifað 06 feb 2011 23:08
Fékk þessar myndir volgar úr vélinni frá Bíldudal á föstudaginn, hafði því miður ekki tíma til að senda þær hingað inn fyrren nú...

www.internet.is/gummistori/isalp_2011/100_3961.JPG
www.internet.is/gummistori/isalp_2011/100_3962.JPG
www.internet.is/gummistori/isalp_2011/100_3963.JPG
www.internet.is/gummistori/isalp_2011/100_3965.JPG
www.internet.is/gummistori/isalp_2011/100_3966.JPG


mbkv,
Gummi St.
kv, Gummi
www.climbing.is

Re: Ísfestival 2011 07 feb 2011 09:32 #11343

Skrifað 07 feb 2011 09:32
Voru þessar myndir teknar á föstudaginn? Lítur ágætlega út. Það væri gott að fá nýjar myndir síðar í vikunni og kannski upplýsingar um snjóaðstæður ...

Annars lítur þetta nú bærilega út, er fólk ekki spennt?

Re: Ísfestival 2011 07 feb 2011 11:26 #11344

Skrifað 07 feb 2011 11:26
Við stefnum á að koma þrír frá Ísó. Ég, Búbbi og Kanadíska undrabarnið hann Danny. Ætla menn almennt að mæta á föstudeginum?
Rúnar Karlsson
href='www.BoreaAdventures.com/' :: href='www.NorthExplorers.is/'

Re: Ísfestival 2011 07 feb 2011 13:10 #11345

Skrifað 07 feb 2011 13:10
Held það sé misjafnt. Helst vildi ég taka langa helgi, bæta við föstudegi eða mánudegi eftir því hvernig spáin er ...

Re: Ísfestival 2011 07 feb 2011 14:23 #11346

Skrifað 07 feb 2011 14:23
sælir

Gaman að fá þessar myndir Gummi, það vantar ekki ísinn þarna eins og er. Spárnar fyrir helgina eru að detta inn núna, virðast vera umhleypingar í báðar áttir framundan. Hvernig líst snjóflóðasetrinu fyrir vestan á aðstæðurnar framundan, er e-ð hægt að segja með vissu?

Skabbi

Re: Ísfestival 2011 07 feb 2011 14:56 #11347

Skrifað 07 feb 2011 14:56
Sé að það er búið að fresta festivalinu um óákveðinn tíma sem er hálf grátlegt í ljósi þess að maður situr í vinnunni og horfir upp á æðislegt vetrarveður út um gluggan.

Ef þetta heldur svona áfram þá verðum við að hugsa út fyrir landsteinana með næstu festivöl ;)

Re: Ísfestival 2011 07 feb 2011 14:59 #11348

Skrifað 07 feb 2011 14:59
Hæ,

eins og staðan er núna virðist ísklifur ekki eiga upp á pallborðið hjá veðurguði vorum.

Minni ís er við Arnarfjörð en á seinasta festivali en það svo sem væri allt í lagi ef ekki væri fyrir það að bannsett veðriði virðist ætla að vera með hamagang um helgina.

Sú ákvörðun hefur því verið tekin að fresta festivalinu að sinni um óákveðinn tíma.

Ísalp finnst ekki heillavænlegt að stefna fjallafólki á svæði þar sem aðstæður þykja ekki öruggar.

Við munum að sjálfsögðu fylgjast með spánni fram að helgi og reyndar allar komandi helgar með von um að geta haldið hið frábæra klifurmót sem ísfestivalið er.
Kv,
Freysi

Myndasíðan mín: picasaweb.google.com/freskur/

Re: Ísfestival 2011 07 feb 2011 15:49 #11349

Skrifað 07 feb 2011 15:49
Þetta er grautfúlt. Ég og margir fleiri eru búnir að stíla inná þessa helgi og komast ekki á öðrum tíma.

Maður finnur sér þá eitthvað annað til dundurs um helgina.

Re: Ísfestival 2011 07 feb 2011 16:36 #11350

Skrifað 07 feb 2011 16:36
Vissulega er þetta grautfúlt.

Það er alveg vitað að það er líklegra til árangurs að færa staðsetningu frekar en tímasetningu þegar kemur að svona viðburðum.

Það er jú einu sinni bara mánudagur og ef menn sjá smugu einhversstaðar á tiltölulega hættulausu ísklifri(snjóflóða- og hrunhætta í lágmarki) þá er þetta að sjálfsögðu vettvangurinn til að deila þeim hugmyndum með okkur hinum.
Kv,
Freysi

Myndasíðan mín: picasaweb.google.com/freskur/

Re: Ísfestival 2011 07 feb 2011 18:23 #11351

Skrifað 07 feb 2011 18:23
Fokking fokk.

Ég er til í nánast hvað sem er, jafnvel sundblakmót. Gerum eitthvað.

Sissi

Re: Ísfestival 2011 07 feb 2011 20:07 #11352

Skrifað 07 feb 2011 20:07
Ég skal skella í eitt festival hérna hjá mér ;).. Hérna má klifra út um allt og ég skal búa til mexikóska kjúklingasúpu ala Helga!

Kveðja frá Norge!

Re: Ísfestival 2011 08 feb 2011 11:06 #11354

Skrifað 08 feb 2011 11:06
Getið þið ekki mætt á þessa hátíð

eljagangur.is/

og gert eitthvað ísklifurlegt???
  • Blaðsíða:
  • 1
tók: 0.45 sek