Borði
Velkomin, Gestur
Username Password: Remember me
Spjall um ævintýraklifur undir frostmarki.
  • Blaðsíða:
  • 1

TOPIC: Klifur um helgina

Klifur um helgina 15 jan 2011 21:41 #11213

Skrifað 15 jan 2011 21:41
Við fórum 4 Ég, James, Viðar og Einar Torfi í Óríon í dag í frábærum aðstæðum. Nóg af ís og mjúkur og góður.

Hvert fóru önnur teymi?
Við sáum einhverja með hjálm á haus standa fyrir ofan ísinn á Korputorgi þegar við renndum í bæinn.

Myndir frá deginum:

picasaweb.google.com/halldor86/Orion2011#

Re: Klifur um helgina 15 jan 2011 23:28 #11214

Skrifað 15 jan 2011 23:28
Kíktum í ný uppgötvuðu perlunar norðan Bröttubrekku og fórum þar Single malt on the rocks í feitum og fínum aðstæðum. Single malt og Appelísn leit líka vel út en bíður betri tíma. Nóg er af ís í þessum stórabróðir Ýrings og eitthvað fyrir alla að finna þar, byrjuendur sem lengra komna. Hláka suðvesturlandsins hefur ekki verið með mikil vandræði þarna og efast ég stórlega um að hún eigi eftir að gera eitthver ursla fyrir morgundaginn ef menn hafa áhuga að skella sér í smá bíltúr og 5-10 mín aðkomu ;)

Myndir koma seinna.

Kv.
Arnar

Re: Klifur um helgina 17 jan 2011 08:42 #11218

Skrifað 17 jan 2011 08:42
Fór með Skabba og Eiríki Gísla í fýluferð inn í Glymsgil en í stað þess að leggjast í volæði drifum við okkur í Þrándarstaðafossana í Brynjudal, þar sem við áttum sérdeilis prýðilegan dag.
Lentum í alveg fáránlegum "spray-on" aðstæðum í tveimur leiðum, sem við ofanóðum ítrekað og varð úr því snilldar tækni- og úthaldsæfing í frábærum passlega blautum ís.
Mælum sterklega með þessu svæði. Býður upp á allt frá þægilegum leiðslu- eða ofanvaðsfossum upp í massív yfirhöng sem gjött er að naga í með tólunum. Víðast eru bunkar á brúninni til að setja upp akkeri og hægt að ganga upp og niður ef menn vilja það.

Var með hausmyndavél í láni og tók eitthvað af klifrinu upp. Sjá:
vimeo.com/18856156

NB Þetta er frumraun mín í "hero-cam" bransanum og ég kann ekkert að klippa svona vídeó en vonandi hafa menn alla vega gaman að þessu, þó ekki sé von á Óskarnum fyrir þetta.

Tók eitthvað af skotum af strákunum að neðan en þar sem linsan er svo gleið á vélinni, þá eru þeir bútar alveg vonlausir til sýninga. Skelli kyrrmyndum af þeim inn á Picasa síðuna í vikunni svo þeir fái uppreisn æru.

Eina stóra leiðin í Hvalfirði sem við sáum að væri í góðum gír var Óríon. Ýringur var ekki til, Rísandi aðeins að byrja, Stígandi ekki til, annað í Múlafjalli afar dapurt. Sáum ekki inn Eilífsdalinn fyrir þoku á leiðinni heim.

Re: Klifur um helgina 17 jan 2011 09:25 #11219

Skrifað 17 jan 2011 09:25
Við Búbbi reyndum við gamlan félaga í Galtardal, Önundarfirði í gær. Fjórða tilraun. Komums tloks hálfa leið í mjög bröttum ís en seinni spönnin byrjar á risa fríhangandi drjóla með vonlausu móbergi á bakvið. Skrúfan var aðeins of langt fyrir neðan til að ég tæki sénsinn. Bíður betri tíma. Þá verður kertið vonandi frosið saman. Annars flottur dagur og klárlega erfiðasta klifur vetrarins hingað til. Ég teipaði Hero vélina á ísexina. Vídeóið er soldið kúl. Á eftir að smella því saman. Prófa að setja inn mynd. Sem gengur yfirleitt ekki...

galtardalur.jpg
Rúnar Karlsson
href='www.BoreaAdventures.com/' :: href='www.NorthExplorers.is/'

Re: Klifur um helgina 17 jan 2011 10:32 #11221

Skrifað 17 jan 2011 10:32
Ég og James fórum í Kjósarskarð(Grenihlíð) í gær. Klifruðum Hrynjanda 150m 3 gráðu um 35min labb frá sama slóða og ef maður fer í Áslák, Síðan vinstra megin við hana leið sem er ekki skráð 30m 4 gráðu. Enduðum síðan daginn á að klifra upp mjög flotta skoru 120m 2/3 gráðu sem við einfórum. Allur ís á svæðinu alveg frábær.
James lætur inn einhverjar myndir við tækifæri.

Kv Dóri

Re: Klifur um helgina 17 jan 2011 10:57 #11222

Skrifað 17 jan 2011 10:57
Við sváfum til 11 í gær og fórum svo í óríon eftir spennandi upplýsingar á isalp.is en snerum við í testofunni þegar skollið var á svartamyrkur og slydda. Frábært klifur annars og sáum við greinilega förin eftir Dóra og félaga frá deginum áður.
kv, Gummi
www.climbing.is

Re: Klifur um helgina 17 jan 2011 16:46 #11223

Skrifað 17 jan 2011 16:46
Arnar Jónsson wrote:
Nóg er af ís í þessum stórabróðir Ýrings og eitthvað fyrir alla að finna þar, byrjuendur sem lengra komna.


Stóri bróðir Ýrings, hvernig í fjandanum færðu það út?

Re: Klifur um helgina 17 jan 2011 22:54 #11225

Skrifað 17 jan 2011 22:54
Finally joined Isalp!

Here are some photos from the weekend

www.facebook.com/album.php?aid=2096129&id=1040752361&l=0af41b3dc7

James

Re: Klifur um helgina 18 jan 2011 09:47 #11226

Skrifað 18 jan 2011 09:47
Yeah! About fu**ing time!

Velkominn í klúbbinn James :)

Re: Klifur um helgina 20 jan 2011 22:46 #11256

Skrifað 20 jan 2011 22:46
Það eru nokkrar myndir frá helginni inná www.climbing.is fyrir áhugasama úr Single malt on the rocks og Óríon sleepoverinu um helgina.
kv, Gummi
www.climbing.is

Re: Klifur um helgina 23 jan 2011 11:18 #11275

Skrifað 23 jan 2011 11:18
Nokkrar myndir frá Þrándarstaðaklifrinu hjá okkur Skabba og Eiríki Gísla komnar á
picasaweb.google.com/hraundrangi/RandarstaIr16Jan2011#

Re: Klifur um helgina 22 feb 2011 09:19 #11462

Skrifað 22 feb 2011 09:19
Það er kominn mánuður frá því að bætt var í þennan þráð. Eru menn og konur dauðar úr öllum æðum???

Erum búnir að vera nokkuð virkir hér. Við Búbbi og Danny fórum á Óshlíðina um helgina og klifruðum langleiðina upp leið sem við Ívar fórum fyrst fyrir mörgum árum. Glæsileg 5gr. leið sem í þetta skiptið var of blaut til að klára. Ansi mikið hrun úr jöðrunum sem sendi mig holdvotan og grenjandi niður. Klifruðum aðra línu við hliðina í góðum alpafíling.

Erum líka búnir að finna nýtt og spennandi svæði á Ingjaldssandi með a.m.k. fimm leiðum sem voru of þunnar þegar á hólminn var komið. Klifruðum samt eina leið sem við skírðum Þorraþræl 4gr. 70 metrar.

Kallinn í efsta haftinu (70m) stuttu áður en var beilað.
P2200148.jpg


Aðrar leiðir við hliðina sem oft ná saman. Fjærst sést í efsta hlutann á leiðinni Eiríki rauða (4+) sem við Eiríkur klifruðum fyrir súrkáli síðan
P2200112.jpg
Rúnar Karlsson
href='www.BoreaAdventures.com/' :: href='www.NorthExplorers.is/'

Re: Klifur um helgina 27 feb 2011 11:49 #11487

Skrifað 27 feb 2011 11:49
Vídjó úr Önundarfirði. Ný leið WI5 og eitthvað.

Rúnar Karlsson
href='www.BoreaAdventures.com/' :: href='www.NorthExplorers.is/'

Re: Klifur um helgina 27 feb 2011 16:13 #11488

Skrifað 27 feb 2011 16:13
Svalt vidjó og ótrúlega töff sjónarhorn!
Það lítur út fyrir að veturinn sé allur hjá ykkur fyrir vestan.

Re: Klifur um helgina 27 feb 2011 16:13 #11489

Skrifað 27 feb 2011 16:13
Svalt vidjó og ótrúlega töff sjónarhorn!
Það lítur út fyrir að veturinn sé allur hjá ykkur fyrir vestan.

Re: Klifur um helgina 27 feb 2011 21:07 #11490

Skrifað 27 feb 2011 21:07
Virkilega flott videó. Metnaðarfullar æfingar með herocamið.

Dóri
  • Blaðsíða:
  • 1
tók: 0.43 sek