Borði
Velkomin, Gestur
Username Password: Remember me
Spjall um ævintýraklifur undir frostmarki.
  • Blaðsíða:
  • 1

TOPIC: Klifur í Brynjudal

Klifur í Brynjudal 10 jan 2011 18:23 #11130

Skrifað 10 jan 2011 18:23
Hæ, eins og fram hefur komið var fjölmennt í Brynjudal á laugardaginn síðasta. Þar hittust fyrir 11 stk sem höfðu það að leiðarljósi að lemja klaka.

Gerðum við það í skál einni við Þrándarstaðafossa en neðri fossinn er vatns- og svipmikill og fellur fram af ca. 15 metra klettabelti.
Myndir:
gudmundurtomasson.photoshelter.com/gallery/Brynjudalur-Climbing-October-30-2010/G00009IY8cjo9D9Q/P0000wfosB1xpXkk

Við vorum í efri skálinni og fundum þar vatnsminni og þar af leiðandi frosnar lænur sem dugðu til að skemmta okkur öllum það sem eftir lifði dags.
Aðgengi uppfyrir leiðir þokkalegt og þægilegt að finna ofanvaðsmöguleika.
Svei mér ef þetta er ekki eins og sniðið fyrir jólaklifur Ísalp eða álíka klifurferðir.

ja.is/kort/#x=386197&y=430514&z=8&type=aerial


picasaweb.google.com/freskur/20102011#

Annars endaði ég með óvenju mikið magn búnaðar sem ég kannast ekki við.
1 BD tvistur, hvítur
1 BD læst karabína
1 On sight slingur, blár
2 Mammut slingar, hvítir.

kv,

Freyr
868-8754
Kv,
Freysi

Myndasíðan mín: picasaweb.google.com/freskur/

Re: Klifur í Brynjudal 10 jan 2011 21:47 #11142

Skrifað 10 jan 2011 21:47


Já, þetta var mikil snilld. Svona verða bestu partýin, eiginlega óvert uppúr þurru. Það er í sjálfu sér merkilegt að það skuli alltaf finnast nýjir og nýjir stórgóðir staðir rétt við bæjarmörkin.

Gleðin í Brynjudal hélt áfram daginn eftir hjá okkur Gulla og Jósef. Óríon var það á sunnudaginn, og hann er F E I T U R!

Meira síðar, + myndir.

Skabbi

Re: Klifur í Brynjudal 11 jan 2011 13:34 #11156

Skrifað 11 jan 2011 13:34


Ég, Jón og Geiri vorum þarna 26 des. klifruðum fyrsta fossinn (Geiri leiddi) inní skálina síðan fossanna tvo hægrameginn í skálinni (Jón og Geiri leiddu) og löbbuðum síðan inn gilið fyrir ofan skálina og klifruðum einn foss þar (ég leiddi).
Hættum snemma vegna þess að allir voru að fara í jólaboð.
Það eru fleiri fossar inni í gilinu stuttar en erfiðar, það sem við sáum allavegana.

Kv.
Siggi

Re: Klifur í Brynjudal 11 jan 2011 18:36 #11166

Skrifað 11 jan 2011 18:36
Sé þarna að Gummi Stóri er að taka myndir hangandi af Marianne í mega-axsjóni. Gummi, einhverjar myndir komnar online af þessu?

Re: Klifur í Brynjudal 11 jan 2011 19:57 #11169

Skrifað 11 jan 2011 19:57
Neibb ekkert online, Gummi T. var aðallega að mynda þó ég stælist aðeins í það... Sé til hvort ég set eitthvað inn, læt þá vita..

-GFJ
kv, Gummi
www.climbing.is

Re: Klifur í Brynjudal 11 jan 2011 23:55 #11175

Skrifað 11 jan 2011 23:55


Henti nokkrum myndum frá síðustu helgi inn á píkösu.

picasaweb.google.com/skabbi/Brynjudalur8Og9Januar2011#

Allez!

Skabbi

Re: Klifur í Brynjudal 12 jan 2011 11:36 #11178

Skrifað 12 jan 2011 11:36
Flottar myndir, sérstaklega frá Óríon

Kv,
Óðinn

Re: Klifur í Brynjudal 13 jan 2011 12:13 #11187

Skrifað 13 jan 2011 12:13
Er ekki málið að bolta eitthvað af þessu mixlænum í þessu Þrándarstaðagili eða hvað þetta heitir?
Lúkkar aðgengilegt og hresst.
  • Blaðsíða:
  • 1
tók: 0.33 sek