Borði
Velkomin, Gestur
Username Password: Remember me
Spjall um ævintýraklifur undir frostmarki.
  • Blaðsíða:
  • 1

TOPIC: Klifur-landakort

Klifur-landakort 21 des 2010 19:34 #10976

Skrifað 21 des 2010 19:34
Hver vill og verður? Væri gamanað setja svona upp fyrir íslenskt klifur. Og snilld að setja upp einhverjar upplýsingar um hvert svæði fyrir aftan. Tölvuséníin eru s.s. komin með verkefni fyrir jólafríið ;)

Klifur-landakort

Re: Klifur-landakort 21 des 2010 19:42 #10977

Skrifað 21 des 2010 19:42
Oh þið verðið s.s að þysja út (mínusinn fyrir ekki tölvuséní)

Re: Klifur-landakort 21 des 2010 22:25 #10978

Skrifað 21 des 2010 22:25
Strákarnir hjá Klifur.is hafa þegar safnað saman ansi miklum upplýsingum um klettaklifur og boulder svæði á landinu.

klifur.is/is/googlemap

Þú ert þó líklega að tala um ísklifursvæði?

Re: Klifur-landakort 22 des 2010 06:24 #10981

Skrifað 22 des 2010 06:24
Þetta er frábært! Núna þarf bara að bæta ísklifursvæðunum inn á voila þá er þetta reddí:)

Re: Klifur-landakort 22 des 2010 12:18 #10984

Skrifað 22 des 2010 12:18


Þetta er sniðugt, akkuru var maður ekki löngu búinn að fatta þetta!

Skabbi

Re: Klifur-landakort 22 des 2010 12:26 #10985

Skrifað 22 des 2010 12:26
Við höfum verið að gera tilraunir með svona ísklifurkort... það er eitthvað á www.climbing.is/gspot2.php?page=climb&svaedi=SV
kv, Gummi
www.climbing.is

Re: Klifur-landakort 22 des 2010 14:14 #10986

Skrifað 22 des 2010 14:14
Flott hjá ykkur Gummi! Meira svona ;)..
Er ekki hægt að setja tengil hérna inn á isalp.is að þessu fína climbing korti? Og jafnvel í framtíðinni að skella þessu öllu saman í eitt fínt klifur landakort :)

Re: Klifur-landakort 23 des 2010 09:18 #10988

Skrifað 23 des 2010 09:18
Ég er alveg sammála að flottast væri að setja þetta allt undir einn hatt einn góðan veðurdaginn og mun það sennilega vera gert. En mikil vinna er eftir til að þetta verði vel nothæft en það er allt að koma. Munum fljótlega svo opna fyrir skráningar á leiðum til að fara að fylla í gagnagrunninn sem er alveg að detta í að vera tilbúinn og væri frábært að fróðir menn sem hefðu áhuga gætu tekið þátt í að setja niður visku sína í gagnagruninn og munum við auglýsa það þegar við opnum skráningu.

Svo er það eitt að þarna verður líka allt á ensku líka, svo að vinir okkar a utan hafi eitthvern stað og séns til að sjá eitthvað um klifur hér á landi :)

En verkefnið hefur mikla möguleika og væri frábært að klifursamfélagið hefi góðan gagnagrunn yfir allar klifurleiðir landsins sem er auðvelt að nálgast.

Gleðileg klifur jól ;)

Arnar
  • Blaðsíða:
  • 1
tók: 0.34 sek