Borði
Velkomin, Gestur
Username Password: Remember me
Spjall um ævintýraklifur undir frostmarki.
  • Blaðsíða:
  • 1

TOPIC: Ísaðstæður yfir hátíðarnar

Ísaðstæður yfir hátíðarnar 19 des 2010 16:41 #10955

Skrifað 19 des 2010 16:41


Sex vaskir sveinar héldu inn í Eilífsdal í gær í félagsklifur Ísalp fyrir jólin. Þar sem norðanbál gekk yfir suðvesturland um nóttina og hífandi rok var enn uppá Kjalarnesi vorum við mátulega bjartsýnir um notarlegheit í Dalnum.

Það reyndist engin ástæða til að óttast veðrið, enda var rjómablíða í Eilífsdal, logn og vægt frost. Nægur ís virtist í flestum leiðum þó svo að einhverjar væru í þynnri kantinum.

Úr varð að þrír fóru í Einfarann og þrír í Miðsúluna. Allir höfðu gaman af, að því að talið er.

Það er fimbulkuldi framundan og margir komnir í jólafrí. Það væri gaman að fá fréttir af aðstæðum annarsstaðar frá og nýlegar hetjudáðir aðrar.

Allez!

Skabbi
P1020013_eilifs1.JPG

Re: Ísaðstæður yfir hátíðarnar 21 des 2010 19:01 #10972

Skrifað 21 des 2010 19:01
Fleiri myndir úr ferðnni? Flott að sjá svæðið svona snjólaust.

Re: Ísaðstæður yfir hátíðarnar 23 des 2010 08:33 #10987

Skrifað 23 des 2010 08:33
Ég frétti að Eyjafjöllin væru í aðstæðum í byrjun vikunnar en sel það ekki dýrar en ég keypti það.
Einhver sem getur staðfest?

Svo sýndist mér vera orðið vel klifurhæft í Tvíburagili þegar ég rýndi þangað með kíki um helgina.

Re: Ísaðstæður yfir hátíðarnar 23 des 2010 13:12 #10989

Skrifað 23 des 2010 13:12
Björgvin Hilmarsson wrote:
Fleiri myndir úr ferðnni? Flott að sjá svæðið svona snjólaust.


Nokkrar hér

Re: Ísaðstæður yfir hátíðarnar 23 des 2010 13:31 #10990

Skrifað 23 des 2010 13:31
Það er búið að vera óvenjumikið frost í Öræfum eins og annars staðar og fullt af ís. Samt er ekki allt í aðstæðum, það er búið að vera svo þurrt með frostinu.

Re: Ísaðstæður yfir hátíðarnar 26 des 2010 10:52 #10993

Skrifað 26 des 2010 10:52
Jökull Bergmann
UIAGM Fjallaleiðsögumaður
www.bergmenn.com :: www.arcticheliskiing.com

Re: Ísaðstæður yfir hátíðarnar 28 des 2010 16:03 #11018

Skrifað 28 des 2010 16:03
töff stöff!

Hefur einhver verið á ferð í nágrenni Búahamra núna nýlega?

F.
Kv,
Freysi

Myndasíðan mín: picasaweb.google.com/freskur/

Re: Ísaðstæður yfir hátíðarnar 28 des 2010 18:50 #11021

Skrifað 28 des 2010 18:50
Reyni að vera með og ''pósta'' því sem ég finn
Hér eru nýjustu myndir úr Kinn, eða frá því í dag að ég held
http://www.facebook.com/#!/album.php?fbid=480176549301&id=213976989301&aid=258967
Jökull Bergmann
UIAGM Fjallaleiðsögumaður
www.bergmenn.com :: www.arcticheliskiing.com

Re: Ísaðstæður yfir hátíðarnar 29 des 2010 19:19 #11035

Skrifað 29 des 2010 19:19
Fínn ís í Villingadal. Vatn í miðjum fossunum en hægt að fara til hliðar við strauminn.

Takið bara með skíðastaf fyrir labbað inn dalinn.

kv.
Ívar
picasaweb.google.com/ivarfinn

Re: Ísaðstæður yfir hátíðarnar 29 des 2010 19:26 #11036

Skrifað 29 des 2010 19:26
snilld, það væri gaman að fá smá klifur áður en árinu lýkur... Það er samt svo hlýtt orðið að það er spurning hvort þetta verði nýja trendið: forums.climbing.com/photopost/showphoto.php/photo/6799
kv, Gummi
www.climbing.is

Re: Ísaðstæður yfir hátíðarnar 29 des 2010 20:17 #11039

Skrifað 29 des 2010 20:17
Ef svo reynist þarf maður nú alvarlega að endurskoða valið á klifurfélögum.
Kv,
Freysi

Myndasíðan mín: picasaweb.google.com/freskur/

Re: Ísaðstæður yfir hátíðarnar 29 des 2010 21:29 #11041

Skrifað 29 des 2010 21:29
Er ég búin að vera að missa af einhverju og er þetta nýja 'pornið'...
Hvað fær fólk annars út í svona hluti?

Re: Ísaðstæður yfir hátíðarnar 30 des 2010 11:46 #11052

Skrifað 30 des 2010 11:46
Freyr Ingi Björnsson wrote:
Ef svo reynist þarf maður nú alvarlega að endurskoða valið á klifurfélögum.


Mig langaði hvort sem er ekkert að klifra meira með þér.

AB

Re: Ísaðstæður yfir hátíðarnar 30 des 2010 15:39 #11058

Skrifað 30 des 2010 15:39
Ég bíð eftir konudags klifrinu...

Skabbi
  • Blaðsíða:
  • 1
tók: 0.42 sek