Borði
Velkomin, Gestur
Username Password: Remember me
Spjall um ævintýraklifur undir frostmarki.
  • Blaðsíða:
  • 1

TOPIC: Jólaklifur, skíðun og Glögg

Jólaklifur, skíðun og Glögg 14 des 2010 13:47 #10918

Skrifað 14 des 2010 13:47


Eins og alltaf brosa veðurguðirnir sínu breiðasta fyrir Ísalpara vegna komandi jólaklifurs. Nægur is í Eilífsdal og frost í kortunum.

Hverjir ætla að mæta, aðrir en ég (og Snoop)?

Allez!

Skabbi

Re: Jólaklifur, skíðun og Glögg 15 des 2010 00:02 #10919

Skrifað 15 des 2010 00:02
Ég reikna með að mæta og með nokkra kópavogsskáta í farteskinu.

Kveðja,

Atli Páls.

Re: Jólaklifur, skíðun og Glögg 15 des 2010 00:11 #10920

Skrifað 15 des 2010 00:11
Úje.

Það lítur allt út fyri að það verði kominn vetur á laugardag. Það er snilld.
Ég stefni á að mæta.

Re: Jólaklifur, skíðun og Glögg 15 des 2010 13:04 #10922

Skrifað 15 des 2010 13:04
Ég mæti. Kem með Slayer. Forskot:



Bragi

P.s. Gæti þegið far.
P.s.s Kom einhverntíma fram hver vann kálfakeppnina í fyrra? Verður hún haldin aftur í ár? Hvað er í verðlaun?

Re: Jólaklifur, skíðun og Glögg 16 des 2010 16:50 #10938

Skrifað 16 des 2010 16:50
Er ekki bara mæting á Select kl. 08:00 þar sem menn hópa sig í bíla?? Einfalt já!

Í fyrra báru allir keppendur af, hver í sínum flokki kálfakeppninnar, og því urðu allir sigurvegarar!

Verðlaun í kálfakeppni voru einn drykkur að eigin vali af gnægtarborði Alpaklúbbsins. Einnig var boðið upp á limbó og stólaleikinn í fyrra. Úúúúú... stemming!

Hef svo sem ekki heyrt neitt eða séð upp í Eilífsdal en býst fastlega við að hann sé alveg glimrandi klifurhæfur. Að minnsta kosti hugg ég að hann verði það á laugardaginn.
Kv,
Freysi

Myndasíðan mín: picasaweb.google.com/freskur/

Re: Jólaklifur, skíðun og Glögg 16 des 2010 17:14 #10939

Skrifað 16 des 2010 17:14
Ég mæti með nýju axirnar...

Re: Jólaklifur, skíðun og Glögg 17 des 2010 09:25 #10940

Skrifað 17 des 2010 09:25
Select kl. 8, glæsilegt, mæti.
  • Blaðsíða:
  • 1
tók: 0.32 sek