Velkomin, Gestur
Username Password: Remember me
Spjall um ævintýraklifur undir frostmarki.
  • Blaðsíða:
  • 1

TOPIC: æjæj...

æjæj... 07 des 2010 16:07 #10894

Skrifað 07 des 2010 16:07
Á DV er sagt frá því að Björgunarsveitir sæki nú mann sem hafi fótbrotnað eftir ísklifur í Banagili.
Vonandi gengur vel að ná í manninn og hann ekki illa brotinn...
Frétt

Re: æjæj... 07 des 2010 16:38 #10895

Skrifað 07 des 2010 16:38
Nafnið á gilinu er ekki beinlínis uppörvandi. Af hverju skyldi það draga nafn sitt? Vonandi eru meiðsl klifrarans eitthvað sem grær áður en viðkomandi giftir sig.

Kv. Árni Alf.

Re: æjæj... 07 des 2010 17:49 #10897

Skrifað 07 des 2010 17:49
Ísklifrarinn sem brotnaði inni í Banagili (Austurárdal) er væntanlega í sjúkrabíl núna rétt um það bil að komast á sjúkrahús.

Ég heyrði í ferðafélögum hans rétt í þessu þar sem þeir voru á heimleið.

Ég læt þeim eftir að útskýra nánari tildrög slyssins en ekki var um klifurfall að ræða.

Góðan bata!
Kv,
Freysi

Myndasíðan mín: picasaweb.google.com/freskur/

Re: æjæj... 08 des 2010 17:10 #10901

Skrifað 08 des 2010 17:10
Af öllum mönnum þurfti það að vera hann.

Nú skil ég pukrið.

kv
ps

Re: æjæj... 08 des 2010 23:38 #10902

Skrifað 08 des 2010 23:38
Slæmar fréttir. Vonandi stefnir í góðan bata.

Hvernær ætla menn annars að deilda fréttum af herlegheitunum?

Re: æjæj... 09 des 2010 08:22 #10903

Skrifað 09 des 2010 08:22
Hvaða pukur er þetta Palli? Ætlarðu að ná þér í 5000 kall hjá DV? Nú vill ég bara vita hver þetta er en ekki hvað gerðist...!
Rúnar Karlsson
www.BoreaAdventures.com

Re: æjæj... 09 des 2010 09:41 #10904

Skrifað 09 des 2010 09:41


Úr því sem komið er held ég að það sé engum til gagns að þegja um þennan leiðinda atburð. Ég vænti þess að þeir sem hlut áttu að máli get skýrt þetta betur út en ég þegar fram líða stundir.

Slysið átti sér stað í stóru hvelfingunni í Austurárdal, sem kallast víst Banagil. Þar voru að klifra þeir Ágúst þór, Ívar Hardcore og Björgvin Hilmarsson. Þeir höfðu nýlokið við að klifra afbrigði af Bláu leiðinni. Björgvin var á e-m þvælingi innst í hvelfingunni þegar hann hrasaði, rann til á smá ísfláa og skall með sköflunginn á grjóti. Við þetta "meinleysislega" slys fór sköflungurinn í sundur, frekar harkalega og þeir áttu engan kost annan en að kalla á hjálp til að koma honum undir læknishendur.

Bjöggi fór í aðgerð í gærmorgun þar sem brotið var sett saman aftur. Hann ber sig eftir atvikum vel. Þetta er ákaflega leiðinlegt náttútulega og við vonum að sjálfsögðu að Bjöggi hljóti eins skjótan bata og hægt er.

Skabbi

Re: æjæj... 09 des 2010 14:37 #10905

Skrifað 09 des 2010 14:37
Það er þá svona sem slysin gerast.
Búinn að leiða flotta leið með stæl og svo búinn að síga alla leið niður aftur.
Tekur upp myndavélina til að taka mynd af félögunum á leið niður og flækja þá broddunum í skóreimunum og detta á hausinn.

Þú át samúð mína alla Bjöggi.

Það er ekkert grín að vera halltur á báðum en kannski jafnast það bara út.

kv
palli

Re: æjæj... 09 des 2010 16:28 #10906

Skrifað 09 des 2010 16:28
Óska Bjögga bata sem fyrst. Hann getur vonandi huggað sig við að það er hláka í kortunum. A.m.k. vel fram yfir helgi.

Kv. Árni Alf.

Re: æjæj... 11 des 2010 11:36 #10909

Skrifað 11 des 2010 11:36
Jæja, þá er maður loksins kominn heim eftir samantjasl á spítalanum og sýklalyf í æð í nokkra daga.

Palli lýsir þessu nú ágætlega, um það bil eins og þetta gerðist. Segir manni bara að þegar maður er kominn úr sínu elementi (lóðrétt) þá þýðir ekki slaka á. Var greinilega kominn í of lítinn bratta : /

Sem sagt ekkert graceful við þetta slys, hreinlega hrasaði í fjallgöngu, rann til og lenti á oddhvössum stein með legginn þvert á hann. Sennilega hefur svo líkaminn komið af fullum þunga ofan á til að tryggja að leggurinn færi alveg í mask. Þríbrotinn takk fyrir og opið í þokkabót.

Það er búið að negla þetta allt saman og skrúfa svo brotin ættu að haldast á sínum stað. En ég er ansi hræddur að annað sísonið í röð sé farið í ruslið. Ferðin var þó góð fram að þessu og ég er sáttur við leiðsluna og leiðin með þeim allra flottustu sem ég hef farið.

Það er seint ofmetið að ferðast með góðu fólki og ég þakka Ívari og Áka fyrir aðhlynninguna og hina frábæru spelku sem vakti ómælda athygli þeirra sem sáu og er komin inn í a.m.k. tvö myndsjóv til sýningar. Björgunarsveitirnar þarna í Dölunum voru líka til fyrirmyndar og fljótar á staðinn, takk allir.

Kv. Bjöggi Brotni
PB250001_minni.jpg
_________________

Klifur og fjallamennska: retro.smugmug.com/Climbing

Re: æjæj... 12 des 2010 00:06 #10910

Skrifað 12 des 2010 00:06
Þetta eru alveg rosalegar fréttir..
En mikið er ég glöð að þú ert samt annars heill á húfi :)
Batnaðaróskir frá mér, og ég vona að þú verðir kominn sem fyrst á ról aftur!

HelgaM

Re: æjæj... 13 des 2010 10:03 #10912

Skrifað 13 des 2010 10:03
Þessi spelka er mögnuð. Giska á að það hafi verið "pínu" óþægilegt að fjarlægja skóinn. Góðan bata.
  • Blaðsíða:
  • 1
tók: 0.27 sek