Borði
Velkomin, Gestur
Username Password: Remember me
Spjall um ævintýraklifur undir frostmarki.
  • Blaðsíða:
  • 1

TOPIC: Diamir Fritschi vesen

Diamir Fritschi vesen 07 nóv 2010 23:09 #10669

Skrifað 07 nóv 2010 23:09
Í þá mund sem ég hélt að ég yrði með fyrstu mönnum til að skíða Bláfjöllin um helgina á fínu (og gömlu) fjallaskíðunum tók hællinn á Fritschi bindingunum upp á því að brotna... Bara sísvona þegar ég steig í bindingarnar.

Ekki beinlínis það sem maður vill lenda í í upphafi vetrar en spurningin er, hvernig reddar maður þessu?

Hafa einhverjir reynslu af svona löguðu og geta bent á þægilegustu leiðina til að laga þetta? Er hægt að fá varahluti eða þarf kannski að splæsa í nýjar bindingar? Of svo er alltaf spurningin, þó að hægt sé að laga gripinn er spurning hvort meira vit sé í því að fá nýjar bindingar - í stað þess að bíða eftir að eitthvað annað bili í miðri salíbunu.

Re: Diamir Fritschi vesen 08 nóv 2010 09:20 #10670

Skrifað 08 nóv 2010 09:20
Sæll

Ég myndi byrja á að athuga hvort Gauti í Útilíf í Glæsibæ eigi það sem brotnaði til að skipta því út.

Kv. KM

Re: Diamir Fritschi vesen 08 nóv 2010 23:00 #10676

Skrifað 08 nóv 2010 23:00
Sælir
Gauti væri sá líklegasti til að eiga og þá vita hvernig megi nálgast varahluti.
Líklega er aldur bindingana farin að segja til sín, sem útskyrir brotið, plastið harðnar með árunum og verður viðkvæmt fyrir kulda.
Ef þú átt möguleika á að fjárfesta þér í nýjum plasthlutum þá ættir þú að geta endurfært bindingarnar. Annars nýrri eða nýjar.
  • Blaðsíða:
  • 1
tók: 0.32 sek