Borði
Velkomin, Gestur
Username Password: Remember me
Spjall um ævintýraklifur undir frostmarki.
  • Blaðsíða:
  • 1

TOPIC: Fyrsta ísklifur vetrarins

Fyrsta ísklifur vetrarins 24 okt 2010 23:25 #10608

Skrifað 24 okt 2010 23:25


Við Bjöggi og Viðar kíktum í Múlafjall í blíðunni í morgun. Hálka með köflum, fátt um fína drætti en unaðslega gaman samt. Múlafjall þarf nokkra góða daga í viðbót. Oríon er orðinn vel sýnilegur og Þilið líka.



Allt að gerast!

Fleiri myndir hér.

Re: Fyrsta ísklifur vetrarins 25 okt 2010 10:18 #10609

Skrifað 25 okt 2010 10:18
Vel gert piltar!

Re: Fyrsta ísklifur vetrarins 25 okt 2010 13:15 #10611

Skrifað 25 okt 2010 13:15
var einmitt að spá hvort ekki væri eitthvað farið að gerast einhverstaðar. Glæsilegt.

Smári

Re: Fyrsta ísklifur vetrarins 25 okt 2010 19:49 #10613

Skrifað 25 okt 2010 19:49
Tryggvi Stefánss. og ég vorum einnig á ferðinni síðastliðinn sunnudag (annan dag vetrar).
Keyrðum undir Múlafjalli og með fyrsta könnunarteymið á símalínunni og sjónauka í andlitinu ákváðum við að freista gæfunnar frekar í Kjósinni en Hvalfirði.

Ísfossinn Spori liggur í um 250 metra hæð yfir sjó, vísar í norður og töluvert lengra inn til landsins en Múlafjallið. Þar fundum við ís.... en ekki sérlega mikið af honum, eða allavega var hann ekki alveg í stuði fyrir ísskrúfur hvar sem er. Í þetta skiptið fóru einungis 4 skúfur í leiðina sem bæði dúaði pínu og var vel blaut að aftan.

Gaman að sjá hvernig veðrið fer með allann þennann uppsafnaða klaka.

Freysi
Kv,
Freysi

Myndasíðan mín: picasaweb.google.com/freskur/

Re: Fyrsta ísklifur vetrarins 25 okt 2010 21:27 #10614

Skrifað 25 okt 2010 21:27
Ég og Finni skelltum okkur í huggulegt alpaklifur á miðvikudaginn síðasta. Bröltum upp norðurhliðina á Kerlingu. Völdum rennu sem skilaði okkur frá hryggnum og endaði rétt vestan við vörðuna.

Klifrið byrjaði einhversstaðar í 1367m. og endaði í 1540m. hæð og þurftum við að byrja á að klifra ofan í sprunguna sem er á milli Lambárjökulsins og Kerlingarinnar til að koamast að fjallinu.

Fyrsta spönnin var nokkuð hressandi, að klifra yfir sprunguna og upp klettinn hinumeginn. Svo tók við hliðrun í rennuna sem við ætluðum upp og smá snjó/ís blanda. Í þessarri spönn notuðum við flestar tegundir af tryggingatólum, vin, hnetur, slinga, fleiga og ísskrúfu. Næstu tvær-þrjár spannir fríklifruðum við þar sem hallinn var minni og töluvert af snjó.

Það er helvíti löng aðkoma að þessarri klifurleið og get ég ekki sagt að ég muni leggja oft leið mína þarna upp til að klifra. En þar sem kvikindið blasir við úr stofuglugganum heima urðum við bara að skella okkur.
n.jpg

Re: Fyrsta ísklifur vetrarins 26 okt 2010 11:21 #10615

Skrifað 26 okt 2010 11:21
Freakin' sweet to see it's already possible to climb some wet ice (for a bit)
I'll be in Klifurhusid this eve and was wondering if I can use my axes there...
Anybody up for some drytooling from around 7ish today?
Grtz!
Marianne

Re: Fyrsta ísklifur vetrarins 30 okt 2010 12:25 #10642

Skrifað 30 okt 2010 12:25
Hæhó

Eitthvað að frétta af aðstæðum í dag???

Re: Fyrsta ísklifur vetrarins 01 nóv 2010 12:15 #10647

Skrifað 01 nóv 2010 12:15


Klifurveður var fallegt um helgina, hverjir fóru út að leika?

Skabbi - sem sat heima

Re: Fyrsta ísklifur vetrarins 01 nóv 2010 15:40 #10648

Skrifað 01 nóv 2010 15:40
Margmennt var í Spora í gær. Þar áttu stefnumót sex klifurmenn.
Styrmir, Arner Felix, Atli Páls, Heiða, Sveinborg og ég áttum þar góða stund.

Þegar ég var þar fyrir viku síðan hafði ég á orði að það væri nú sniðugt að hafa sigakkeri við þennan vinsæla stað og mætti því vopnaður borvél í þetta skiptið.

Leiðin skartar því tveimur boltum núna, einum efst og öðrum á millistallinum.

Sveinborg tók myndir.

Frétti svo af öðru gengi í Brynjudal. Þau voru í einhverju mixi.. eða þurrtólun.

Ljósmynda-Gummarnir voru báðir með í för og því ættu að vera til myndir af því einhversstaðar á alnetinu.

Freysi
Kv,
Freysi

Myndasíðan mín: picasaweb.google.com/freskur/

Re: Fyrsta ísklifur vetrarins 01 nóv 2010 15:56 #10649

Skrifað 01 nóv 2010 15:56
Já og bæ ðe vei, flott klifur á Kerlinguna hjá ykkur Jón norðan Heiðar og Finni.
Hafa norðanmenn verið að brölta þarna áður?
Er þetta frumferð?
Kv,
Freysi

Myndasíðan mín: picasaweb.google.com/freskur/
  • Blaðsíða:
  • 1
tók: 0.38 sek