Gott fólk.
Við Leifur fórum á þriðjudaginn í Öræfin til að leika okkur. Úr varð að við fórum nýja leið upp vesturfésið á Hnjúknum. Svo við vitum hefur aðeins Helgi Ben verið á ferð í þessum vesturvegg en fór allt aðra leið. Eftir að við komum í bæinn fórum við beint niðrí Útilíf að hitta Helga og hann veit ekki um aðra heldur. Okkar leið er mjög "direct" og má sjá hana á myndum sem finna má hér:
retro.smugmug.com/Ice-climbing/Ný-leið-á-vesturfés/13905626_qoyVc#1020478893_83tLj
(Alltaf vesen með þessa linka. Ef þið farið ekki beint inn þá farið hingað
retro.smugmug.com/Ice-climbing og þar sjáið þið möppuna)
Sumir munu kannski undrast á tímasetningunni en í raun er þetta frábær tími. Allt laust grjót eftir sumarið farið niður og hörku vetur skollinn á þarna uppi. Það er allt pinnfrosið en lítill snjór. Leiðin er undir massífum serökkum sem hanga yfir fésinu og mikið hrun geinilega þarna úr svo aðstæður skipta verulegu máli.
Þar sem Leifur er á leið úr landi og ég á leið úr bænum, þá hafði ég ekki tíma til að lýsa þessu nánar inní gallerýinu né hér. Það kemur síðar.
Vildi þó koma þessu á framfæri, ekki síst vegna þess að við fundum klifurlínu skorðaða á milli steina rétt undir lok leiðarinn, í næsta skorningi við okkur. Tékkið á myndunum og lesið myndatextann. Hvað er þessi lína að gera þarna? Hvernig komst hún þangað? Er þetta lína frá tveimur týndum þjóðverjum??? Ef einhver veit eitthvað um þessa línu þá má hinn sami láta heyra í sér.
Meira síðar.
Kv. Björgvin