Velkomin, Gestur
Username Password: Remember me
Spjall um ævintýraklifur undir frostmarki.
  • Blaðsíða:
  • 1

TOPIC: Innanhús ísaxir - FigFour dry tool

Innanhús ísaxir - FigFour dry tool fyrir 1 ári, 8 mánuðum síðan #10224

Skrifað fyrir 1 ári, 8 mánuðum síðan
Veit ekki hvort allir kannast við þessar axir. En prófaði þetta í gær og þessar axir koma glettilega á óvart þrátt fyrir óvenjulega hönnun. Gætu komið sér vel fyrir monsún tímabílið á Íslandi. En læt myndbandið talar sínu máli hvernig þær virka.

Njótið,
Gunnar



Meira um axirnar hér.

Re:Innanhús ísaxir - FigFour dry tool fyrir 1 ári, 8 mánuðum síðan #10227

Skrifað fyrir 1 ári, 8 mánuðum síðan
Þetta er endalaust sniðugt. Snillingur sem lét sér detta þetta í hug...
Þarf að íhuga vandlega hvort vert sé að fjárfesta í svona júniti.

FigFour dry tool -eða Continental kílreimar fyrir 1 ári, 8 mánuðum síðan #10228

Skrifað fyrir 1 ári, 8 mánuðum síðan
Rollubændur undir Eyjafjöllum fundu upp betri drætúlunargræjur fyrir mörgum áratugum.

Fyrir margt löngu vorum við á leið á Ingimund og höfðum tal af rígfullorðnum bændum þegar við lögðum bílnum. Bændur sýndu klifurglingrinu nokkurn áhuga en sáu fljótt að nokkru var áfátt og spurðu:
-"Eruð þið ekki með neinar viftureimar"?
-"Viftureimar"!
-"Já, -við notum alltaf viftureimar þegar við smölum fjallið" (fjallið er móbergshroði og í raun vafasamara til umferðar en Ingimundur).
-"Notið þið viftureimar til að fanga rollurnar" (a la Kúrekar Norðursins)?
-"Nei, -við notum viftureimarnar til að klifra. Það er svo asskoti gott að húkka þeim upp á nibbur sem eru ofan seilingar og betra að halda um þær en klöppina"...

Að sjálfsögðu áttuðum við okkur á því að viftureimar eru djöfull góðar í þetta. Þær eru stífar og lyppast ekki niður þegar þú ýtir þeim upp. Innhliðin er úr gúmmí og hefur gott grip og þú getur notað þær sem sling þar sem þær eru andskotanum sterkari.

Fást á næstu bensínstöð í mismunandi lengdum og breiddum....

www.marxparts.com/images/29-32%20chevrol...generator%20belt.jpg

Re:Innanhús ísaxir - FigFour dry tool fyrir 1 ári, 8 mánuðum síðan #10230

Skrifað fyrir 1 ári, 8 mánuðum síðan
Sigurður Tómas Þórisson skrifaði:
Þetta er endalaust sniðugt. Snillingur sem lét sér detta þetta í hug...
Þarf að íhuga vandlega hvort vert sé að fjárfesta í svona júniti.


Sénsinn, þú smiðar þetta sjálfur í íspinnaprikum og viftureim.

Svo smíðaru handa mér...

:D

Skabbi

Re:Innanhús ísaxir - FigFour dry tool fyrir 1 ári, 8 mánuðum síðan #10232

Skrifað fyrir 1 ári, 8 mánuðum síðan
Minnir mig þegar ég vann í Skátabúðinni hér um árið og fékk einn nýgræðing inn sem var í leiðsögumannaskólanum sem var að leita að móbergsbroddum. Ég sagði honum að það væri ekki til, og hvort hann væri alveg viss um að þeim hafi verið sagt að koma og kaupa svoleiðis. Hann kvað svo vera.
  • Blaðsíða:
  • 1
tók: 0.30 sek