Borði
Velkomin, Gestur
Username Password: Remember me
Spjall um ævintýraklifur undir frostmarki.
  • Blaðsíða:
  • 1

TOPIC: KKK- Klifur,kjötsúpa,Kinn

KKK- Klifur,kjötsúpa,Kinn 03 mar 2010 12:41 #10022

Skrifað 03 mar 2010 12:41
Hlöðver á Björgum hafði samband við mig á dögunum og vill hann ólmur fá til sín ísklifrara til að berja á hinum sanna norðlenska ís. Að vísu hefur hann haft hjá sér teymi Ítala sem gerðu sitt allra besta og hömuðust á ísnum í heila viku án árangurs. Ísinn er einfaldlega of mikill.

Hann stingur upp á að klifrufólk flykkist norður helgina 12.-14. mars og þiggi af sér gistingu og ketsúpu gegn vægu gjaldi.

Það er nú ekki amalegt að hafa svona verta sem sjá til þess að fólk hafi gott og gaman.

Aðstaða og andrúmsloft er þarna með allra besta móti og sjá má nánar um það ásamt aðstæðum hverju sinni á þessarri slóð: bjorgum.is/icebjorg/

Hvað segja menn, á ekki bara að fylgjast vel með spánni og efna til hópferðar?

Freyr http://www.isalp.is/media/kunena/attachments/legacy/images/IMG_5673.jpeg
Attachments:
Kv,
Freysi

Myndasíðan mín: picasaweb.google.com/freskur/

Re:KKK- Klifur,kjötsúpa,Kinn 03 mar 2010 13:30 #10023

Skrifað 03 mar 2010 13:30
Er það ekki málið?
Ef spáin er góð þá er ég all in :)
kv,
HelgaM

Re:KKK- Klifur,kjötsúpa,Kinn 03 mar 2010 13:46 #10024

Skrifað 03 mar 2010 13:46
Gott að heyra að ísbryðjandi harðkjarninn mun hafa eitthvað við að vera á meðan við sósjal-telemarkarar skemmtum okkur hinum megin við hólinn í Hlíðarfjalli.
Vúhú! kisskiss.
telly_238.jpg

Re:KKK- Klifur,kjötsúpa,Kinn 03 mar 2010 14:16 #10025

Skrifað 03 mar 2010 14:16
Ég held þetta sé málið. Ætla að sækja um útivistarleyfi.

Re:KKK- Klifur,kjötsúpa,Kinn 08 mar 2010 11:55 #10038

Skrifað 08 mar 2010 11:55
Þetta hljómar vel en útlitið er ekki sérlega gott. Skv. veðurspánni þá er hiti í kortunum út vikuna svo ekki hefur það góð áhrif á ísinn. Ég er persónuleg mjög heitur fyrir að fara í Kinnina en held að það geti verið skynsamlegt að fresta þessu um viku.

Hvað segja menn um að fjölmenna í Kinnina þarnæstu helgi?

Svo er auðvitað spurning hvort það sé mögulegt fyrir Hlöðver að taka á móti hópi þá. Ég skal senda á hann póst og tékka á stöðunni.

Re:KKK- Klifur,kjötsúpa,Kinn 10 mar 2010 13:59 #10057

Skrifað 10 mar 2010 13:59
Vegna veðurs undanfarna daga og veðurspár framundan er ekki boðlegt að vera að bjóða upp KKK díl um þessar mundir. Engu að síður mun félagi okkar hann Hlöðver á Björgum vafalítiið reynast reiðbúinn í slag með Ísölpurum næst þegar gerir góða ís-tíð.

Hér er að finna umfjöllun RÚV á heimsklassa ísklifursvæðinu í Kaldakinn:

dagskra.ruv.is/sjonvarpid/4497925/2010/03/08/14/

Svo er nátturlega Telemarkfestival með tilheyrandi gleði um haldið um helgina...

Freyr
Kv,
Freysi

Myndasíðan mín: picasaweb.google.com/freskur/

Re:KKK- Klifur,kjötsúpa,Kinn 10 mar 2010 14:23 #10059

Skrifað 10 mar 2010 14:23
Ég heyrði í Hlöðveri og þetta er augljóslega off næstu helgi og tæpt með þá næstu þar á eftir. Hann taldi að sísonið væri búið. En já, þetta bíður bara betri tíma.

Re:KKK- Klifur,kjötsúpa,Kinn 10 mar 2010 14:55 #10060

Skrifað 10 mar 2010 14:55
dagskra.ruv.is/sjonvarpid/4497925/2010/03/08/14/

Sjá -> Eitt eftirsóttasta klifursvæði landsins.

kv.
Palli
  • Blaðsíða:
  • 1
tók: 0.35 sek