Borði
Velkomin, Gestur
Username Password: Remember me
Almennar umræður um menn og málefni, ferðalög og fjallgöngur.
  • Blaðsíða:
  • 1

TOPIC: Að pósta myndum...

Að pósta myndum... 23 feb 2010 20:15 #9948

Skrifað 23 feb 2010 20:15
Langar að biðja þá sem eru að pósta myndum á netið af einhverju fjallastússi, endilega að láta vita af því hér á vef Ísalp. Þetta er vissulega oft gert, þá með því að setja inn link á gallerý sem fólk hefur komið sér upp. En stundum þá fer þetta framhjá manni, sérstaklega þegar eingöngu er verið að pósta þessu á helv**is fésbókinni.

Nú ætla ég bara að taka eitt dæmi og það er af honum Dóra. Hann er ekki sérstakelga hörundssár og gæti auk þess lamið mig ef hann væri í stuði til þess. Þess vegna ætla að ég að nota tækifærið og skamma hann því hann var að pósta myndum frá Rjukan á fésbókinni en ekki hér, vef íslenskra fjallamanna. Skamm skamm!

Dóri, drífa sig svo í að setja inn link hér og hananú.


- Nett pirraður laumufésari

Re:Að pósta myndum... 23 feb 2010 21:02 #9950

Skrifað 23 feb 2010 21:02
Henti inn nokkrum myndum úr ferð okkar félaganna til Rjukan fyrr í mánuðinum og það er rétt það fór fyrst á helv**is fésbókina afsaka það.

picasaweb.google.com/halldor86/Rjukan615Feb2010#

Er samt ekki viss hvort ég leggði í þig Bjöggi svo það má deila um endalok þess bardaga.

Kv Fésbókarvinurinn

Re: Að pósta myndum... 23 feb 2010 22:20 #9951

Skrifað 23 feb 2010 22:20
Já talandi um það Bjöggi, nú þegar þú hefur ekkert að gera og situr bara heima væri flott að fá nýjan skammt af mydum frá þér á veraldarvefinn.
picasaweb.google.com/ivarfinn

Re: Að pósta myndum... 23 feb 2010 23:46 #9952

Skrifað 23 feb 2010 23:46
Rétt hjá þér Ívar... commin' up!

Re:Að pósta myndum... 24 feb 2010 10:35 #9958

Skrifað 24 feb 2010 10:35
Ég legg til að Bjöggi og Dóri fái úr þessu með bardagann skorið hið fyrsta. Það dugar ekki að hafa óútkljáða bardaga hangandi yfir sér.
B

Re:Að pósta myndum... 27 feb 2010 11:03 #9997

Skrifað 27 feb 2010 11:03
Jæja Ívar, þú baðst um það...

Hér eru m.a. myndir af Hardcore að fá væna rassskellingu í Tvíbbagili...

retro.smugmug.com/Ice-climbing/Tviburagil/Tvíburagil-various/7423684_UzJZ3#797056710_cyQPi


(Eitthvað að klikka greinilega með það að búa til link hér á síðunni, besta að láta tékka á því...)

Re:Að pósta myndum... 27 feb 2010 11:17 #9998

Skrifað 27 feb 2010 11:17

Re:Að pósta myndum... 27 feb 2010 11:35 #9999

Skrifað 27 feb 2010 11:35
Þegar ég setti http:// fyrir fram þá kom linkur yfir hálft URLið, ekki allt. Fannst betra að taka það út og hafa engan link á bakvið en asnalegan.

[editerað]

Hér eru myndirnar myndirnar...
Attachments:

Re:Að pósta myndum... 28 feb 2010 23:28 #10001

Skrifað 28 feb 2010 23:28
Skemmtilegar myndir ;).. verst með jakkann en gott með öklann!

Re:Að pósta myndum... 01 mar 2010 12:05 #10004

Skrifað 01 mar 2010 12:05
Talandi um myndir..

Rakst á þessa skemmtilegu mynd. Því að fara útá land þegar þú getur klifrað heima hjá þér?



Btw. Fínar myndir hjá þér Bjöggi. Gaman að sjá myndir af flugferðum :)

Kv.
Arnar

Re:Að pósta myndum... 01 mar 2010 14:54 #10005

Skrifað 01 mar 2010 14:54
Mjög flottar og skemmtilegar myndir.

AB
  • Blaðsíða:
  • 1
tók: 0.49 sek