Borði
Velkomin, Gestur
Username Password: Remember me
Almennar umræður um menn og málefni, ferðalög og fjallgöngur.
  • Blaðsíða:
  • 1

TOPIC: Aðstæður

Aðstæður 29 jan 2010 15:15 #9785

Skrifað 29 jan 2010 15:15
Jæja... það hlaut að koma að því að hitatölur færu að detta fyrir niður núllið á veðurkortunum.

Lumar einhver á upplýsingum um skafla sem má renna sér í, frosinn mosa eða ís sem má berja í eða eitthvað enn frumlegra...

kv.

Re:Aðstæður 29 jan 2010 18:04 #9786

Skrifað 29 jan 2010 18:04
Á Bláfjallasvæðinu þá er varla hægt að finna skafl fyrir gönguskíði, hvað þá skafl til að renna sér í. Dagurinn í dag var mjög fallegur, snjóhvítur snjór í fjöllum og bleikir akrar þar undir. Þessi fallegi snjór er þó hálfgerð blekking. Ekki brúklegur. Minnir helst á fyrstu haustsnjóa. Kannski það sé bara farið að hausta seint. Vonandi vorar ekki snemma.

Kv. Árni Alf.

Re:Aðstæður 29 jan 2010 19:52 #9787

Skrifað 29 jan 2010 19:52
Enginn átt leið um Kjósina til að glugga upp í Eilífsdal?
Helst að maður hafi trú á að þar hafi eitthvað verið að gerast síðustu 2-3 vikur en þó sennilega á mörkunum (kalt á nóttunni en funheitt á daginn oftast).

Re:Aðstæður 30 jan 2010 22:25 #9788

Skrifað 30 jan 2010 22:25
Örstutt af aðstæðum...

Rúntuðum fram hjá Villingadal þar sem aðalfossinn leit út fyrir að vera í aðstæðum.
Leiðin lá svo á Skessuhornið, NA-hrygginn.
Þar voru skemmtilegustu aðstæður, allt orðið gegnfrosið þó lítið fari fyrir ís. Lítill snjór en eins og alltaf búinn að safnast fyrir í varasamar lænur.

Mæli með þessari klassísku leið.

Re:Aðstæður 31 jan 2010 12:23 #9791

Skrifað 31 jan 2010 12:23
Nægur ís í Skíðadal og Svarfaðardal, nánast enginn í Hörgárdal ? en flottar aðstæður í Öxnadal. Ekki skemmir veður blíðan fyrir.
JB
Jökull Bergmann
UIAGM Fjallaleiðsögumaður
www.bergmenn.com :: www.arcticheliskiing.com

Re:Aðstæður 31 jan 2010 13:28 #9793

Skrifað 31 jan 2010 13:28
Keyrði í gegnum Öræfin í gær. Þar virtist einver ís hafi lifað af hlákutíðina, en ekki var hann mikill.

Re:Aðstæður 31 jan 2010 15:11 #9794

Skrifað 31 jan 2010 15:11
Aðstæður í Eilífsdal, Villingadal, Skarðsheiði:

arnarogberglind.smugmug.com/2010/iskonnun/11095586_ECSxr#777026409_MDRaW


Berglind og Arnar

Re:Aðstæður 31 jan 2010 16:05 #9796

Skrifað 31 jan 2010 16:05
Hugtakið ískönnunarflug hefur öðlast nýja merkingu.
Þetta er virkilega flott.

Re:Aðstæður 31 jan 2010 20:02 #9798

Skrifað 31 jan 2010 20:02
Smellti mér í Skíðadalinn í dag og dró Oliver upp úr rúmminu eftir Þorrablót sem stóð fram á morgun. Eftir egg og beikon röltum við út og upp í fjall. Það er náttúrulega frábært að búa á Másstöðum í Skíðadal, ísleiðir beint fyrir ofan bæinn.

Fínar aðstæður í Skíðadalnum, fullt af færum leiðum.

kv
Jón H

Re:Aðstæður 31 jan 2010 20:49 #9799

Skrifað 31 jan 2010 20:49
Vá! Geggjaðar myndir.
Mig grunaði að það væri einhver kunnugur í þessari vél.
Magnað að fá þessar loftmyndir.

Re:Aðstæður 31 jan 2010 21:55 #9800

Skrifað 31 jan 2010 21:55
Eins og sumir vita erum við Freysandi Fresh miklir áhugamenn um ýmiskonar brölt líkt og formaður Ólympíska fjélagsins, Andri Bjarnfreðarson hefur boðað í gegnum árin.

Með glampa í augum og eldmóð í hjarta sóttum við Stymma og heilan big-wall rakk af klettatryggingum í nærliggjandi sveitarfélag og héldum á vit ævintýranna í suðurhlíðum Esju.

Að sjálfsögðu enduðum við í allt öðru - ísklifri. Klifruðum prýðilega leið sem heitir því frumlega nafni Ísþilið (leið #41 í leiðarvísinum). Leiðin sú er nokkur hundruð metrum austan við Andrahrygg og sést sjálfsagt langt að, m.a. vel af gönguleiðinni á Þverfellshorn, magnað að maður hafi ekki farið þetta áður.

Fyrsta haftið var þunnt, kertað, skrýtið, asnalegt, erfitt og mjög svo eftirá-skemmtilegt. Stutt en tæknilegt.

Síðan tók við simul klifur upp að aðalhöftunum, hvar við tókum hægra afbrigðið sem fer framhjá mest áberandi þilinu. Var þetta full spönn af stórskemmtilegu 3-4 gr. klifri upp á brún. Töff leið í ótrúlega kúl umhverfi. Tók ekki mikið af skrúfum (enda voru þær í bænum utan einhverra þriggja forngripa sem Stymmskí dró upp úr pyngju sinni við fögnuð viðstaddra).

Æðislegur dagur á fjöllum!

Sissi, Freysi og Stymmi

Re:Aðstæður 31 jan 2010 23:58 #9803

Skrifað 31 jan 2010 23:58
Vá! Frábærar loftmyndir, verulega gaman að sjá þetta. Takk.

Re:Aðstæður 02 feb 2010 18:43 #9817

Skrifað 02 feb 2010 18:43
Frábærar loftmyndir. Við hefðum múnað úr Skessuhorninu ef það hefði ekki verið svona seinlegt að losa klifurbeltin.

Steinar

Re:Aðstæður 03 feb 2010 17:40 #9822

Skrifað 03 feb 2010 17:40
Kíkti í Kinn
Fáránlega lítill ís
Allt sem komið var fyrir hitabeltis tímabilið var hrunið
og þar sem að hitanum fylgdi engin úrkoma hér norðan heiða
að þá gengur uppbygging hægt sökum raka leysis, þrátt fyrir
gott frost. Sömu sögu er að segja af fleiri svæðum hér norðan
heiða s.s Múla og Hörgárdal. ''Klassískar'' leiðir í
Skíða/Svarfaðardal s.s Super Dupont og Ormapartý eru inni.
Svo mætti nú alveg fara að snjóa líka, því hér hefur varla fallið
korn úr lofti síðan fyrir jól.
En svo kemur þetta allt saman á endanum ekki satt ?

JB
Jökull Bergmann
UIAGM Fjallaleiðsögumaður
www.bergmenn.com :: www.arcticheliskiing.com

Re:Aðstæður 05 feb 2010 09:04 #9829

Skrifað 05 feb 2010 09:04
Eitthvað að gerast í aðstæðum einhverstaðar sunnan heiða? spáin er góð, ætlar ekki einhver að gera eitthvað?

kv. Smári

Re:Aðstæður 05 feb 2010 17:39 #9831

Skrifað 05 feb 2010 17:39
Viðar, Bjöggi og ég fórum í Tvíbba gilið í dag, nóg af ís fyrir þá sem klippa bolta. En djöfull var þetta nú allt erfitt svona sem næstum fyrsta klifur vetrarins. Best að vera snemma þar sem síðdegissólin losar um allt litla dótið sem hangir víða.
picasaweb.google.com/ivarfinn

Re:Aðstæður 06 feb 2010 20:32 #9833

Skrifað 06 feb 2010 20:32
Ég er búinn að vera að klifra í þessum fína ís á Kvískerjum í Öræfum í dag, laugardag. Fór með tvo hollenska kúnna í leið sem heitir Kerling 10 mínútu labb frá bæjarhlaðinu á Kvískerjum, og svo frumfórum við 5 spanna leið skammt vestan við bæinn, innan við 10 mínútna ganga aftur. (Mest mjög auðvelt, en 2 12 metra lóðréttir kaflar.
Það er hins vegar mjög lítill ís kominn í þekktar leiðir í Öræfum. Ég sá í fyrradag að það var hægt að klifra nokkrar stuttar leiðir við Skaftafellsjökulsporðinn í Skaftafelli. (Gengið 200 metra inn með sporðinum fyrst.
Stefni jafnvel í Breiðdalinn með kúnnana mína eftir helgi, læt vita....
Einar Öræfingur.

Re:Aðstæður 07 feb 2010 13:48 #9835

Skrifað 07 feb 2010 13:48
Já, lítur út fyrir að Hollendingarnir hafi fengið eitthvað fyrir peninginn sinn! Annars fórum við Palli Sveins upp í Tvíbbagil í morgun. Hiti vel yfir frostmarki og vatn niður með öllum klettunum. Við ákváðum því að reyna frekar að vinna stig fyrir að vera heima á sunnudegi en að klifra.

Þetta er líklega slakasti vetur sem ég hef upplifað á mínum 18 ára klifurferlli!
picasaweb.google.com/ivarfinn

Re:Aðstæður 07 feb 2010 14:50 #9836

Skrifað 07 feb 2010 14:50
Allt að koma hér norðan heiða.

Ný leið farin í Múlanum í gær.
Þar eru hlutirnir farnir vel af stað með 10-15 leiðum í aðstæðum m.a sjálfum Míganda. Þynnstu og erfiðustu línurnar eiga enn nokkra daga í land en hér er gott frost og spáð köldu út vikuna. Mér telst til að þetta séu að verða einhverjar 15 FF í Múlanum í vetur og enn af nægu að taka.
Þeir sem eru Fés(Facebook) væddir geta kíkkt á síðu Bergmenn Mountain Guides til að sjá myndir úr Múlanum og svo þarf ég klárlega að taka mig saman í andlitinu og birta myndir og uppls einhversstaðar. Hvernig er annars með þessa ágætu síðu ?? Á ekki að koma upp einhverju skráningarkerfi ??

Geri fastlega ráð fyrir að Kinnin sé dottin inn líka miðað við ástandið í Múlanum og svo er náttúrlega allt í aðstæðum í Skíðadal og Svarfaðardal.

Semsé öllu skárra ástand norðan heiða heyrist mér.

JB
Jökull Bergmann
UIAGM Fjallaleiðsögumaður
www.bergmenn.com :: www.arcticheliskiing.com

Re:Aðstæður 07 feb 2010 23:43 #9837

Skrifað 07 feb 2010 23:43
Fínar aðstæður í tvíburagili í gær. Fórum með Ágústi og Sigga Tomma. Hér eru myndir frá góðum degi.

arnarogberglind.smugmug.com/gallery/11173060_7nqsz#783218502_kitSP

kv. Arnar og Berglind

Re:Aðstæður 08 feb 2010 12:08 #9839

Skrifað 08 feb 2010 12:08
Já, þetta var sérdeilis prýðilegt.
Ólympíska í mjög skemtilegum aðstæðum. Himinn og haf óvenju ísmikil en Verkalýðs, Síams og HFF frekar þunnar.
Hreðjun og byssurnar höndluðu ekki Verkalýðsfélagið þennan daginn en hún verður vonandi kláruð í næsta túr uppeftir...

Re:Aðstæður 08 feb 2010 13:17 #9840

Skrifað 08 feb 2010 13:17
Það þyrfti helst að færa efsta boltann í Verkalýðsfélaginu enda varla hægt að klippa í hann nema að hafa sigið í leiðina og komið fyrir löngum tvisti. Önnur og kannski betri lausn væri að bæta við einum bolta neðan við þann efsta.

Ég get víst ekki fjarboltað frá Danmörku og því má einhver boltunarvanur klifrari gjarnan taka þetta að sér.

Var þetta kannski ekkert að trufla þig, Siggi?

Kveðja,

AB

Re:Aðstæður 08 feb 2010 16:33 #9845

Skrifað 08 feb 2010 16:33
Þú ert væntanlega að gleyma hvað ég er ótrúlega harður nagli. :)
Jú, þessi klipping er megasteikt, sérstaklega þar sem húkkarnir á klöppinni hægra megin eru ekki sérlega solid og maður er í alveg fáránlegri stellingu við þessar æfingar. Alveg að skíta á mig við þetta.
Reyni að kippa með mér vél uppeftir næst og laga þetta.

Þarf líka helst að bæta við boltum ofan og neðan við núverandi boltun - neðst í Síams svo þurfi ekki að klippa í neðsta Ólympíska boltann og svo mætti alveg bæta við bolta efst í Síams og HFF til að hægt sé að toppa þær án stófelldrar andlátshættu í þunnum aðstæðum.
Spurning hvað Ívar og þú Andri segið við slíkum hugrenningum...

Annars er gaman að geta þess að ég er vörsluaðili mixboltasjóðsins góða og tek glaður við úthlutunarumsóknum frá boltagröðum aðilum. hraundrangi(hjá)gmail og 860-7467.

Re:Aðstæður 08 feb 2010 19:05 #9846

Skrifað 08 feb 2010 19:05
Hljómar vel
picasaweb.google.com/ivarfinn

Re:Aðstæður 10 feb 2010 07:59 #9856

Skrifað 10 feb 2010 07:59
Í góðu lagi mín vegna. Freysi boltaði H.F.F. með mér og ég á ekki von á öðru en að honum lítist líka vel á þetta.

Kveðja,

AB
  • Blaðsíða:
  • 1
tók: 0.51 sek