Á morgun (20/01/2010) kl. 20, er seinni fyrirlesturinn um snjóflóð og að þessu sinni er það Árni Jónsson (
www.snjoflod.is) sem talar.
Það hafa þrír seljendur snjóflóðabúnaðar nú þegar boðað komu sína til að kynna vörur sínar, þ.e. RS-Import (Garmin-búðin) sem eru með ARVA og Garmin, Fjallakofinn sem er með Pieps og fleira og Safalinn sem er með Barryvox.
Ég mun segja frá kynningarafsláttum hér um leið og ég fæ upplýsingar um þá en nú hef ég fengið staðfest að RS-Import verða með 20% afslátt af ARVA og Garmin sem gildir annaðkvöld og tvo næstu daga þar á eftir.
Fylgist vel með þessum þræði...
Sjáumst annaðkvöld!