Sælir félagar.
Veðurguðirnir hafa ekki verið hliðhollir ís- og snjóunnendum sunnanlands þessi misserin.
Fyrirhuguðu jólaklifri og -skíðun verður þó ekki frestað eða aflýst.
Komið hefur upp hugmynd að halda á Sólheimajökul og lemja í ís á laugardeginum og mega þeir sem hafa áhuga á því gjarnan skrá sig inní dagskrárliðnum.
Skíðunin er þó aðeins erfiðari viðfangs, nema norðan heiða.
Jólaglöggið verður þó haldið. Hinn klassíski stóladans, kálfakeppni og limbó.
Eru ekki allir til?
kv. Björk