Velkomin, Gestur
Username Password: Remember me
Almennar umræður um menn og málefni, ferðalög og fjallgöngur.
  • Blaðsíða:
  • 1

TOPIC: Nýr afsláttur

Nýr afsláttur fyrir 2 árum, 2 mánuðum síðan #9516

Skrifað fyrir 2 árum, 2 mánuðum síðan
Það var að bætast spennandi afsláttur við listann okkar góða. Fyrirtækið ATH í Skeifunni ætla að gefa okkur 15% afslátt af ljósmyndaprentun, plöstun og frágangi á ál og frauðplast (foam).

Þeir sem eru að taka myndir og vilja stækka upp og setja á álplötu eða frauð þá er þetta málið. Hef sjálfur prófað að setja á frauð en á álið eftir. Í báðum tilfellum er prentað á pappír og svo er plasthúð sett yfir.

Þetta var ódýrara en ég hélt og svo kemur núna afslátturinn ofaná. Bara mæta og flagga Ísalpskírteininu.

Tékk itt!

Svar:Nýr afsláttur fyrir 2 árum, 2 mánuðum síðan #9517

Skrifað fyrir 2 árum, 2 mánuðum síðan
Þetta er flott fyrirtæki, ég hef verið að láta prenta og ganga frá myndum eftir mig þarna og þeir eru mjög góðir, sanngjarnir og liðlegir.

Þeir hafa séð um prent og frágang fyrir mig á þónokkrum stórum Panó myndum, 180x60 cm og lúkkar vel! Hægt er að velja milli þriggja glansstiga á varnarfilmunni sem sett er yfir, en það er matt, milliglans og háglans og henta þau í misjöfn verk.

Endilega prufið, þið getið líka séð myndir hjá mér sem þeir hafa gengið frá ef þið viljið, gæti jafnvel komið með eitthvað meðferðis eftir Jólaklifrið/skíðunina.

kv. Gummi St.
kv, Gummi
www.climbing.is

Svar:Nýr afsláttur fyrir 2 árum, 2 mánuðum síðan #9518

Skrifað fyrir 2 árum, 2 mánuðum síðan
Frábært! Plöstun og frágangur á foam core - pottþétt eitthvað sem ég kemt til með að nýta mér :)
  • Blaðsíða:
  • 1
tók: 0.28 sek