Borði
Velkomin, Gestur
Username Password: Remember me
Almennar umræður um menn og málefni, ferðalög og fjallgöngur.
  • Blaðsíða:
  • 1

TOPIC: Ársritin

Ársritin 04 des 2009 10:40 #9483

Skrifað 04 des 2009 10:40
hæhæ
Höfum dreift eitthvað af ritum til félaga sem verða á vegi stjórnar.

Ársritin fara annars í póst í dag.
Það eru eflaust margir með vitlaust skráð heimilisfang í prófílnum sínum og þ.a.l. fá ritið sent á vitlaust heimilisfang. Sá póstur endar aftur hjá okkur.

Hvet fólk til að fara yfir þetta hjá sér og ef það er með vitlaust skráð heimilsfang og er að bíða eftir riti að láta mig vita.

bjorkh(at)gmail.com

kv. Björk

Svar:Ársritin 04 des 2009 10:47 #9484

Skrifað 04 des 2009 10:47
Og ekki má gleyma félagsskírteinum sem finna má inni í ársritinu ásamt auka glaðning!

Lesa má allt um þá afslætti sem félagsmönnum bjóðast hér.

Séu einhverjir aðilar þarna úti sem vilja bætast í hóp þeirra sem bjóða okkur afslátt, þá endilega hafið samband við stjórn.

Svar:Ársritin 04 des 2009 11:43 #9485

Skrifað 04 des 2009 11:43
Vantar inn aflætti á námskeið fyrir Ísalp félaga - sem reyndar borga ansi fljótt upp árgjaldið fyrir þá sem nýta sér það.

Varð annars á vegi stjórar í gær - og þeir sem enn bíða eftir sínu ársriti hafa virkilega eitthvað að hlakka til.

kv. Ívar
picasaweb.google.com/ivarfinn

Svar:Ársritin 07 des 2009 13:02 #9490

Skrifað 07 des 2009 13:02
Vill nota tækifærið og hrósa ritnefnd og stjórn fyrir frábært ársrit...nice one. Og ekki skemmir glaðningurinn. Það liggur við að maður kaupa sér jeppa utan um gluggalímmiðann :-)
\"There are only 3 real sports: bull-fighting, car racing and mountain climbing. All the others are mere games.\"

-Hemingway

Svar:Ársritin 08 des 2009 13:20 #9493

Skrifað 08 des 2009 13:20
Ég tek undir það. Frábært ársrit sem heldur bara áfram að batna.

Hvet menn að hætta að spá í snjó- og ísalögum í 2 mínútur og pósta inn tveimum setningum um hvað ritnefndin er að gera frábæra hluti - hún á það skilið fyrir óeigingjarnt starf.

Svar:Ársritin 08 des 2009 16:33 #9494

Skrifað 08 des 2009 16:33
Ótrúlega flott ársrit og greinilega mikil vinna sem liggur þarna á bak við!
Húrra fyrir frábærri ritnefnd ;)
Hlakka til að líma límmiðann á bílinn

Þúsund þakkir

Svar:Ársritin 08 des 2009 20:28 #9495

Skrifað 08 des 2009 20:28
Helga, ég er ekki viss um á blátt og appelsínugult fari vel saman!
picasaweb.google.com/ivarfinn

Svar:Ársritin 08 des 2009 22:25 #9497

Skrifað 08 des 2009 22:25
Hvenær megum við landsbyggðarmenn og konur eiga von á herlegheitunum inn um lúguna?
Rúnar Karlsson
href='www.BoreaAdventures.com/' :: href='www.NorthExplorers.is/'

Svar:Ársritin 08 des 2009 22:51 #9498

Skrifað 08 des 2009 22:51
Ég held að það passi vel saman, en annars sprauta ég bara bílinn upp á nýtt svo hann lúkki við límmiðann ;)

Svar:Ársritin 08 des 2009 23:14 #9500

Skrifað 08 des 2009 23:14
Helga: Appelsínan verður ALDREI sprautuð! Ef einvher svo mikið sem reynir það þá mynda ég human-chain utan um hana, fer í hungurverkfall og hringi í Sölva Tryggva!

...bíð eftir að fá mitt eintak í hendurnar en það sem ég hef séð hingað til lofar mjög góðu.

Svar:Ársritin 08 des 2009 23:59 #9501

Skrifað 08 des 2009 23:59
Ársritin fóru í póst á föstudag þannig að þau ættu að fara týnast inn til fólks.
Það verður að viðurkennast að nokkrir fengu heimsendingu en það er bara af því þeir áttu heima í næsta húsi við stjórnarmann eða unnu í sama húsi.
Reyndar átti sér stað leynilegur fundur á bílastæðinu í Hlíðarfjalli um helgina þar sem fulltrúi ÍSALP félaga á Akureyri fékk í hendurnar flest þau eintök sem tilheyrðu bæjarbúum. Er hann væntanlega búinn að dreifa þeim um bæjarfélagið, aðrir geta leitað á náðir lögreglunnar á Akureyri.

Svar:Ársritin 09 des 2009 15:44 #9513

Skrifað 09 des 2009 15:44
Það sem fer í póst á föstudegi er borið út á mánudegi. Ertu viss um að þetta hafi verið sent af stað??? Maður er orðinn svo svaka spenntur.

rok
Rúnar Karlsson
href='www.BoreaAdventures.com/' :: href='www.NorthExplorers.is/'

Svar:Ársritin 09 des 2009 15:58 #9514

Skrifað 09 des 2009 15:58
obbosí Rúnar.
Það kom víst ekkert heimilisfang á umslagið þitt úr prentun, það voru nokkur svoleiðis, svo þitt fór í póst í dag. Þykir það mjög leiðinlegt þar sem að þú ert svo rosalega spenntur.
Ef það væri kvöldflug til Ísafjarðar þá myndi ég fara og henda einu með vélinni.

Minni alla á að uppfæra prófílinn sinn þannig að þær upplýsingar sem þar eru séu réttar.

Svar:Ársritin 09 des 2009 16:03 #9515

Skrifað 09 des 2009 16:03
Það verður ekki siglt á Ísafjörð fyrr en í vor, bilaði skipið.

Svar:Ársritin 09 des 2009 21:05 #9519

Skrifað 09 des 2009 21:05
Ég fékk mitt delivered í vinnuna:) Flott rit, takk fyrir það. Var ekki lengi að ramma ísalp merkið inní rauða poloinn.

Svar:Ársritin 09 des 2009 21:31 #9520

Skrifað 09 des 2009 21:31
Ég er nú orðin frekar spenntur.
Bíð við lúguna á hverjum degi.


kv.
Palli

Svar:Ársritin 10 des 2009 09:44 #9523

Skrifað 10 des 2009 09:44
Búinn að vera að bíða spenntur en var að fatta að heimilisfangið var ekki skráð á síðunni, búinn að laga það og bíð nú enn spenntari.

kv. Smári

Svar:Ársritin 12 des 2009 17:45 #9533

Skrifað 12 des 2009 17:45
virkilega flott ársrit megið vera stolt af þessu.

Svar:Ársritin 13 des 2009 11:14 #9535

Skrifað 13 des 2009 11:14
Frábært ársrit. Ég las það næstum því spjaldana á milli fyrsta kvöldið eftir að ég fékk það.

kv.
Steinar

Svar:Ársritin 14 des 2009 11:32 #9538

Skrifað 14 des 2009 11:32


Ritnefnd þakkar hlýleg orð í hennar garð. Við vonum að fólk geti haft e-ð gagn og gaman af ritinu. Það er alltaf gaman að fá feeback frá lesendum, bæði klapp á bakið og ábendingar um það sem betur má fara eða hugmyndir að efni í næsta rit.

Nú sem endranær bendum við á að uppistaðan af ársritinu er innsent efni frá félögum í klúbbnum. Það er því full ástæða til að hvetja menn áfram í þeim efnum.

Allez!

Skabbi

Svar:Ársritin 15 des 2009 00:59 #9540

Skrifað 15 des 2009 00:59
Alvöru ársrit. Ég las það í döðlur um leið og það kom inn um lúguna.

Svar:Ársritin 17 des 2009 00:22 #9546

Skrifað 17 des 2009 00:22
hreint út sagt frábært blað.

kv.
Jón H

Svar:Ársritin 17 des 2009 00:33 #9547

Skrifað 17 des 2009 00:33
Ég er ekki enn búin að fá mitt eintak, búin að kíkja í lúguna á hverjum degi. Samt er rétt heimilisfang skráð.

Svar:Ársritin 17 des 2009 18:09 #9555

Skrifað 17 des 2009 18:09
Ekkert heldur borist til mín. Borgaði reyndar árgjaldið ekki fyrr en 1. des. Kannski fer maður bara í Jólaköttinn!

Kv. Árni Alf.
  • Blaðsíða:
  • 1
tók: 0.44 sek