Velkomin, Gestur
Username Password: Remember me
Almennar umræður um menn og málefni, ferðalög og fjallgöngur.
  • Blaðsíða:
  • 1

TOPIC: Mig vantar klifurfélaga

Mig vantar klifurfélaga fyrir 2 árum, 2 mánuðum síðan #9471

Skrifað fyrir 2 árum, 2 mánuðum síðan
Ef einvern Ísalpara langar til að freista gæfunnar:

Veðurstofa Íslands óskar eftir að ráða sérfræðing í rannsóknarverkefni á Snjóflóðasetri Veðurstofunnar á Ísafirði. Um er að ræða tímabundið starf til eins árs.
Starfssvið

Meginverkefnið felur í sér tölfræðilegar rannsóknir á snjóflóðagögnum. Við vinnuna er m.a. notað líkan sem reiknar flæði snjóflóða.
Menntun og hæfniskröfur

* Háskólamenntun á sviði raunvísinda eða önnur sambærileg menntun sem nýtist í starfi
* Góð tölvukunnátta
* Reynsla af vinnu við rannsóknir er kostur
* Færni í mannlegum samskiptum
* Skipulögð vinnubrögð, frumkvæði og sjálfstæði í starfi
* Reynsla af útivist við íslenskar vetraraðstæður er kostur
* GETA FARIÐ REGLULEGA ÚT AÐ LEIKA MEÐ RÚNARI (innsk. rok)

Á Snjóflóðasetri Veðurstofunnar á Ísafirði eru sjö starfsmenn. Setrið er í Vestrahúsinu þar sem einnig eru fjölmargar aðrar rannsóknarstofnanir og Háskólasetur Vestfjarða.

Um er að ræða fullt starf og fara launin eftir kjarasamningi ríkisins og viðeigandi stéttarfélags.

Nánari upplýsingar um starfið veita Harpa Grímsdóttir útibússtjóri Snjóflóðaseturs Þetta tölvupóstfang er varið gegn ruslpóstsþjörkum, Þú verður að hafa JavaScript virkt til að sjá það. , s. 8430413 og Borgar Æ. Axelsson mannauðsstjóri Þetta tölvupóstfang er varið gegn ruslpóstsþjörkum, Þú verður að hafa JavaScript virkt til að sjá það. , s. 5226000.

Umsóknarfrestur er til 15. desember 2009.

Umsóknir sem greina frá menntun og fyrri störfum skulu berast Borgari Ævari Axelssyni, Bústaðavegi 9, 150 Reykjavík eða í tölvupósti á netfangið Þetta tölvupóstfang er varið gegn ruslpóstsþjörkum, Þú verður að hafa JavaScript virkt til að sjá það. merkt „Sérfræðingur á snjóflóðasetri“.
Rúnar Karlsson
href='www.BoreaAdventures.com/' :: href='www.NorthExplorers.is/'

Svar:Mig vantar klifurfélaga fyrir 2 árum, 2 mánuðum síðan #9473

Skrifað fyrir 2 árum, 2 mánuðum síðan
Djö...ég ætlaði að sækja um þar til ég sá að færni í mannlegum samskiptum er nauðsynleg.
  • Blaðsíða:
  • 1
tók: 0.29 sek