Velkomin, Gestur
Username Password: Remember me
Almennar umræður um menn og málefni, ferðalög og fjallgöngur.
  • Blaðsíða:
  • 1

TOPIC: Allt að gerast

Allt að gerast fyrir 2 árum, 2 mánuðum síðan #9468

Skrifað fyrir 2 árum, 2 mánuðum síðan
Af því að ég hef það pínulítið á tilfinningunni að margir fylgist grannt með spjallinu, en sjái annað síður þá langar mig að benda ykkur á nokkra hluti.

Vidjókvöld á fimmtudag.

Ársritaafhendingu líka á fimmtudag.

Uppfærða afsláttasíðu en félagar mega eiga von á félagsskírteinum og ársriti inn um lúguna í næstu viku.

Og jólaklifur/skíðun sem þið megið láta ykkur hlakka til meira en til jólanna.

Svar:Allt að gerast fyrir 2 árum, 2 mánuðum síðan #9469

Skrifað fyrir 2 árum, 2 mánuðum síðan
Allt saman mjög spennandi... það borgar sig greinilega að vera ísalpari.

Hvernig er það annars, er það meitlað í stein að allir viðburðir séu á fimmtudagskvöldum? Kannski eiga aðrir við sama vandamál að glíma við og ég, þ.e. að vera alltaf bundinn við annað á fimmtudagskvöldum og því kemst ég aldrei... sem er helvíti fúlt.

Annars bíð ég spenntur eftir að sjá ársritið góða.

Svar:Allt að gerast fyrir 2 árum, 2 mánuðum síðan #9480

Skrifað fyrir 2 árum, 2 mánuðum síðan
Ársritið kom glóðvolgt úr prentsmiðjunni í kvöld og við stjórnarliðar búin að handleika það.
Þeir sem ekki sjá sér fært að kíkja við annað kvöld og ná í ritið, félagsskírteinið og óvæntan glaðning mega eiga von á því í pósti í næstu viku.

Annars var ég að setja eldheita fundargerð stjórnarfundar á síðuna en það er eitthvað sem við munum gera í framtíðinni svo allir geti fylgst með okkar verkum. Bæði til að geta gagnrýnt og dáðst að þeim, boðið aðstoð eða ráðlegginar, eða bara látið sér fátt um finnast.
Áhugasamir lesi þetta .
  • Blaðsíða:
  • 1
tók: 0.29 sek