Sæl
Af einhverjum ástæðum er allt í einu mikil umræða í kringum mig um tryggingamál í klifri. Sjálfur hef ég reynt að finna einhverja lausn á þessu fyrir mig eftir að ég gafst upp á að borga Alianz í evrum.
Ég get ekki sagt að ég hafi verið fullkomlega sáttur við þau verð sem eru í boði. Hinsvegar tel ég tvímælalaust að hér sé eitt mesta hagsmuna mál fjallamanna, ekki síður mikilvægt en ársrit og skálar.
Ég hvet því til þess að Ísalp beiti sér í þessu og reyni í ljósi þess að í klúbbnum eru xxx félagar að kría út einhverskonar gott tilboð. Ég get sagt fyrir mig að það tryggingafélag sem tryggir mig í klifri fær líka að tryggja húsið mitt og bílinn og allt annað sem ég kem til með að viða að mér í lífgæðakapphlaupinu.
Ég veit að ég er langt frá því að vera einn um þetta á meðal fjallamanna.
Einn sem ég þekki er með töluvert undir hjá einu af tryggingafélögunum. Það félag tryggir hann í klifri fyrir litlar 80.000 kr aukalega á ári. Hann hinsvegar klifrar líklega ekki nema 30 daga á góðum vetri - það gerir ekki nema 2.700kr í hvert skipti. Og svo finnst mönnum ísskrúfur dýrar!
Ef veturinn er slappur og hann nær ekki nema 20 dögum þá eru þetta einungis 4.000 spirur á dag - það er náttúrulega bara gefið!
Í ljósi þess að meðal ísalp félagi er vart meira en 15 daga í ísklifir eða utanbrautar skíðun á ári er þetta náttúrulega algerlega út úr kú!
Í allra besta falli ættu tryggingafélögin að bjóða upp á tryggingu sem nær til allra jaðaríþrótta, þá er markhópurinn orðin klifrar, ræðarar, fjallahjólamenn, skíðamenn etc.
Ég bíð hér með fram aðstoð mína til stjórnar í að vinna að þessum málum - og hvett til þess að þetta sé set í forgang!
kv.
Ívar