Nú er komið að því að ég þurfi að endurnýja ýlinn minn.
Er ekki enn búin að ákveða hvað skuli kaupa enda margt í boði.
Það er hægt að lesa ýmislegt um þessar hátæknigræjur á netinu en ég er forvitin að vita hvaða ýla þið eruð að nota.
Kostir/gallar?
Þessi
ýla-gaur hefur valið topp 3 ýla sem eru Ortovox S1, Pieps DSP og Pulse Barryvox.
Hafa einhverjir reynslu af þeim?
með snjókveðju,
sveinborg