Borði
Velkomin, Gestur
Username Password: Remember me
Almennar umræður um menn og málefni, ferðalög og fjallgöngur.
  • Blaðsíða:
  • 1

TOPIC: Mynd dagsins

Mynd dagsins 28 okt 2009 09:26 #9189

Skrifað 28 okt 2009 09:26
Sæl
Margar af myndum dagsins eru orðnar ansi gamlar og farnar að þrá smá pásu frá internetinu.

Ég auglýsi hér með eftir fleiri myndum frá félagsmönnum. Ef þið hafið kunnátu til að laga stærðina þá eiga að vera 800 pixlar á breidd en mest 400 pixlar á hæð. Ef ekki þá megiði bara senda þær óbreyttar á stjorn(at)isalp.is

kv. Björk

Svar:Mynd dagsins 26 nóv 2009 23:59 #9441

Skrifað 26 nóv 2009 23:59
hæhæ
Fyrri póstur skilaði 2 myndum.

Væri ekki gaman að sjá fleiri myndir sem mynd dagsins en myndir eftir Sigga Tomma, af Sigga Tomma eða vinum Sigga Tomma;)

Hvet ykkur aftur til að senda inn mynd dagsins, helst einhverjar vetrarmyndir. Þetta þurfa ekki að vera myndir sem hafa unnið ljósmyndasamkeppni.

bjorkh(at)gmail.com


kv. Björk

Svar:Mynd dagsins 27 nóv 2009 09:54 #9442

Skrifað 27 nóv 2009 09:54
Þú ert bara öfundsjúk af því að þú ert ekki vinur hans Sigga Tomma.

Svar:Mynd dagsins 27 nóv 2009 11:41 #9444

Skrifað 27 nóv 2009 11:41
nei Skabbi, vinir hans Sigga eru bara ekki nógu gott myndefni;)

Svar:Mynd dagsins 27 nóv 2009 13:11 #9445

Skrifað 27 nóv 2009 13:11
Endalaust vanþakklæti er þetta í Bork. :)
Þessum myndum var fagnað ógurlega í vor þegar heimasíðan kom enda ekki komið ný mynd á forsíðuna árum saman (sbr. "bla bla klifar Hval 1 á dögunum..." (as in 2004)

En jú auðvitað gaman ef þetta er ekki sama karúsellan alltaf.
Kannski má nýta eitthvað af umframmyndunum úr ársritinu í þetta.

Svar:Mynd dagsins 27 nóv 2009 18:10 #9448

Skrifað 27 nóv 2009 18:10
Klúður,
ég hefði ekki átt að senda þér a.m.k. aðra myndina Björk. Vissi ekki að það mætti ekki senda inn myndir af Sigga :P
Síðan veit ég hvort fyrirsætan á hinni myndinni er vinur Sigga Tomma, gæti verið?

Nú er ég ekki alveg viss hverjir eru nákvæmlega vinir Sigga Tomma. Svo kannski er best upp á framtíðina að gera að fólk komi fram og tilkynni hvort það er vinur hans. Svo maður fari nú ekki að senda inn forsíðumynd með óviðeigandi einstaklingum.

Svar:Mynd dagsins 28 nóv 2009 11:03 #9454

Skrifað 28 nóv 2009 11:03
Erum við að tala um nýjar eða nýlegar myndir eingöngu eða mega þeir vera komnar til sinna ára ef þær eru í réttum gæðum?

Klifur+rennsli úr ferðum um landið góða eða afmarkast þær ekkert sérstaklega við landhelgina?

kv.Himmi

Svar:Mynd dagsins 28 nóv 2009 11:29 #9455

Skrifað 28 nóv 2009 11:29
Þetta má alveg vera gamalt og þarf ekki endilega að vera frá Íslandi. Endilega bomba á okkur myndum.
  • Blaðsíða:
  • 1
tók: 0.38 sek