Borði
Velkomin, Gestur
Username Password: Remember me
Almennar umræður um menn og málefni, ferðalög og fjallgöngur.
  • Blaðsíða:
  • 1

TOPIC: Mánudags myndir

Mánudags myndir 21 sep 2009 14:55 #9036

Skrifað 21 sep 2009 14:55
Í ljósi þess að aðstæður til utanhúss iðkunnar flestra okkar áhugamála eru í hinu árlega uppnámi sem kallað er haust á Íslandi datt mér í hug að sýna ykkur þessar frábæru myndir.

Þarna er að finna myndir sem sanna það enn og aftur að oft leitum við langt fyrir skammt og að hér á okkar farsældarfróni er ýmislegt hægt að gera. Allar þessar myndir koma frá atvinnumönnum í myndabransanum, en fyrir utan hirðljósmyndara ÍSALP Guðmund Tómasson eru þarna allt útlendingar á ferð og sannast þar hið fornkveðna að glöggt sé gests augað.
Njótið vel

Jökull

Skiing in Iceland

Climbing in Iceland
Jökull Bergmann
UIAGM Fjallaleiðsögumaður
www.bergmenn.com :: www.arcticheliskiing.com

Svar:Mánudags myndir 21 sep 2009 17:18 #9037

Skrifað 21 sep 2009 17:18
vá takk fyrir þetta, ótrúlega flottar myndir.

Alveg rétt margt hægt að gera á Íslandi og hægt að taka sér gott vetrarfrí og skíða og klifra fullt.

Enda eru Íslendingar alveg eitthvað að fara í ferðir veturna og vorin til að skíða og klifra á Íslandi. Frábært alveg.

Svar:Mánudags myndir 21 sep 2009 22:21 #9040

Skrifað 21 sep 2009 22:21
Kærar þakkir fyrir þetta - brakandi flottar myndir!

Svar:Mánudags myndir 23 sep 2009 13:43 #9046

Skrifað 23 sep 2009 13:43
Já það er óþarfi að ferðast hálfan hnöttinn til að fá flott klifur enda af nógu er að taka heimafyrir. En ætli það sé ekki einmitt aðstæðurnar títtnefndu sem draga menn á fjarlægari slóðir, þeas veðrið.

Ef hægt væri að klípa í kletta utandyra í 12 mánuði á ári að þá væri ef til vill Spánn ekki svo vinsæll áfangastaður meðal íslenskra klifrara. Ekkert gaman að handleika plastið megnið af árinu. Því miður að þá vantar einnig uppá að geta fyllt uppí þessa ófáu rigningardaga með smá slúttandi bergi ( picasaweb.google.com/himmi78/Mars2009#5319591114990089842 )

Svo er það haustið sem æsir upp mannskapinn með sínum frostaköflum svona rétt áður en það rignir aftur. Snjór sem kemur og fer jafnóðum.

En annars þá er Ísland bezt í heimi og takk fyrir glimrandi myndir!!!

kv.Himmi

Svar:Mánudags myndir 01 okt 2009 22:26 #9087

Skrifað 01 okt 2009 22:26
Fyrir þá sem eru orðnir spenntir að þá er gott að vita að á Dalvík voru 15cm jafnfallnir í morgun og ísleiðir í hæð eru barasta farnar að sýna sig... Smellti inn fleiri skemmtilegum myndum sem flestir ættu að hafa gaman af. Í þett sinn er það steinolíu skíðamennska af dýrustu sort eða úrtak úr heli ski vertíðinni á Tröllaskaganum 2009.

Njótið vel

Jökull

Arctic Heli Skiing 2009
Jökull Bergmann
UIAGM Fjallaleiðsögumaður
www.bergmenn.com :: www.arcticheliskiing.com

Svar:Mánudags myndir 12 okt 2009 10:49 #9109

Skrifað 12 okt 2009 10:49
Nei það er ekki verra að byrja mánudaginn með smá myndaglápi héðan.

Hvernig eru annars snjóalög víðsvegar um landið? Einhverstaðar hægt að byrja að safna rispum undir skíðin?

Svar:Mánudags myndir 13 okt 2009 12:06 #9116

Skrifað 13 okt 2009 12:06
Glæsilegar myndir Jökull. Fylgist spenntur með snjóalögum og byrja strax í kvöld að breikka skíðin fyrir hið norðlenska púður.
Góðar kveðjur í kotið.
Jón Gauti
  • Blaðsíða:
  • 1
tók: 0.23 sek