Borði
Velkomin, Gestur
Username Password: Remember me
Almennar umræður um menn og málefni, ferðalög og fjallgöngur.
  • Blaðsíða:
  • 1

TOPIC: Skálaflutningur

Skálaflutningur 13 ágú 2009 23:42 #8925

Skrifað 13 ágú 2009 23:42
Sæl
Gaman að segja frá því að skálinn er lagður af stað austur í lögreglufylgd:)

Skáladrengir hafa staðið í ströngu síðastliðna daga að redda öllu sem þarf til að klára dæmið.

Spennandi.

kv. Björk

Re: Skálaflutningur 14 ágú 2009 08:54 #8927

Skrifað 14 ágú 2009 08:54
....og hann er kominn á Hvolsvöll!

kv,
Steppo

Re: Skálaflutningur 14 ágú 2009 10:24 #8928

Skrifað 14 ágú 2009 10:24
...stoppadi hann a Gallery Pizza?

Re: Skálaflutningur 16 ágú 2009 21:43 #8938

Skrifað 16 ágú 2009 21:43
Já Halli hann stoppaði og fékk sér pizzu.

En skálinn er kominn á sinn stað - það var unnið mikið uppí Tindjföllum um helgina í rigningu.

hér koma myndir frá helginni.

picasaweb.google.com/bjorkh/FlutningurTindfjallaskala#

Re:Skálaflutningur 19 ágú 2009 10:00 #8948

Skrifað 19 ágú 2009 10:00
Virkilega skemmtileg stemming í þessum myndum og augljóst að ég hef misst af miklu allt síðasta ár. Þakka öllum sem lögðu hönd á plóg við verkefnið og sér í lagi Gutta fyrir hans óeigingjörnu vinnu.
Hlakka mjög til að kíkja í Tindfjöll og kanna hvernig gangi að rifja upp gamlar og góðar stundir í þessu glæsilega húsi. Trúi því að gamall andi svífi enn yfir þrátt fyrir andlitslyftinguna.
kv, Jón Gauti
Og af því að ég missti svo illa af bæði vinnunni, "reisugilinu" og flutningunum læt ég mig dreyma um sameiginlega ferð í sól, snjó og blíðu næsta vors þar sem gömlum brýnum og nýjum verður stefnt í Tindfjöll.
  • Blaðsíða:
  • 1
tók: 0.29 sek