Borði
Velkomin, Gestur
Username Password: Remember me
Almennar umræður um menn og málefni, ferðalög og fjallgöngur.
  • Blaðsíða:
  • 1

TOPIC: Vatnajökull í s/h

Vatnajökull í s/h 11 ágú 2009 16:58 #8913

Skrifað 11 ágú 2009 16:58
Komið sæl,

Ég er nú ekki vanur að vera að henda inn einhverjum auglýsingum hér inn og hálf skammst mín fyrir það. En mér datt samt í hug að mörg ykkar hefðu gaman af því að sjá þetta.

Ég var að búa til myndaseríu "Vatnajökull í svarthvítu". Hægt er að skoða seríuna á: www.climbing.is/lesa_frett.php?cat=3&id=136

Njótið vel.
kv. Gummi St.
Attachments:
  • Attachment Aðeins í boði fyrir innskráða notendur, skráðu þig inn.
kv, Gummi
www.climbing.is

Re:Vatnajökull í s/h 12 ágú 2009 14:51 #8919

Skrifað 12 ágú 2009 14:51


Margar mjög skemmtilegar myndir í þessari seríu. Takk fyrir að pósta þessu Gummi.

Allez!

Skabbi

Re:Vatnajökull í s/h 12 ágú 2009 17:50 #8920

Skrifað 12 ágú 2009 17:50
Þegar ég skoða myndirnar langar mig mest að hrinda öllu af skrifborðinu mínu með dramatískum hætti, hlaupa út af skrifstofunni, skella á eftir mér hurðum og bruna austur ekki seinna en núna.

Stórglæsilegar myndir, takk fyrir að deila þeim.

Re:Vatnajökull í s/h 12 ágú 2009 21:26 #8921

Skrifað 12 ágú 2009 21:26
Þú klikkar ekki á ljósmyndunum Gummi frekar en í leiðsögninni. Flottar myndirnar frá Hrútfjallstindum.

Re:Vatnajökull í s/h 12 ágú 2009 22:13 #8922

Skrifað 12 ágú 2009 22:13
Þetta eru helvíti skemmtilegar myndir, fínt að hafa eitthvað að skoða svona á kvöldin. Smá samviskubit samt í gang yfir því að hafa hjólað Neshring í kvöld en ekki staðið á flottum tindi í Öræfum ;)

Sissi

Re:Vatnajökull í s/h 12 ágú 2009 22:54 #8923

Skrifað 12 ágú 2009 22:54
Magnaðar myndir. Vel til fallið að hafa þær í svart/hvítu.

Helgi Borg

Re:Vatnajökull í s/h 13 ágú 2009 11:28 #8924

Skrifað 13 ágú 2009 11:28
Jám - að sópa öllu af skrifborðinu og hlaupa á fjöll er klárlega rétti leikurinn :)

Re:Vatnajökull í s/h 14 ágú 2009 00:07 #8926

Skrifað 14 ágú 2009 00:07
Glæsilegar myndir Gummi!

Re:Vatnajökull í s/h 17 ágú 2009 17:48 #8941

Skrifað 17 ágú 2009 17:48
Takk fyrir
kv, Gummi
www.climbing.is

Re:Vatnajökull í s/h 23 ágú 2009 19:11 #8960

Skrifað 23 ágú 2009 19:11
Sammála Önnu Guð! Þetta eru ótrúlega flottar myndir af fallegasta svæði landsins..

Re:Vatnajökull í s/h 23 ágú 2009 22:35 #8962

Skrifað 23 ágú 2009 22:35
Skil ekki hvaða bull þetta er í þér að segjast skammast þín fyrir að vera að "auglýsa". Auðvitað á að benda á svona fjallaseríur. Töff stöff.

Svar:Vatnajökull í s/h 25 ágú 2009 22:58 #8968

Skrifað 25 ágú 2009 22:58
Virkilega skemmtilegar myndir Gummi.
Vinsamlega gerðu meira af þessu.
kv, Jón Gauti
  • Blaðsíða:
  • 1
tók: 0.44 sek