Tindfjallaskáli- endurgerð að klárast!
18 jún 2009 22:58 #8734
Skrifað 18 jún 2009 22:58
Vil benda mönnum á nýjustu myndir af skálanum. Eins og sjá má þá er endurgerðin mjög langt kominn og styttist í að hann verði fluttur aftur til síns heima.
Helgina 26-28 júní næstkomandi verður farin undirbúningsferð í Tindfjöll til þess að smíða nýjar undirstöður fyrir skálann. Öll aðstoð væri vel þegin. Þeir sem vilja aðstoða okkur endilega setið ykkur í samband við einhvern í skálahópnum
Re:Tindfjallaskáli- endurgerð að klárast!
25 jún 2009 21:17 #8756
Skrifað 25 jún 2009 21:17
Minni á hressandi vinnuferð upp í Tindfjöll um helgina. Markmiðið er að klára undirstöðurnar fyrir skálann og hafa þannig allt til reiðu fyrir sjálfan skálaflutninginn síðar í sumar.
Góður hópur hefur þegar meldað sig inn og má þar nefna stórmagistera eins og:
Kristján Guðni
Hlynur Stefáns
Hlynur Skagfjörð
Hálfdán veðurguð
Fjallaskarpur
Bragi Freyr
Bjarki granni
..og e-r afkvæmi og makar auk undirritaðs.
Þess utan hafa ýmsir Tindfjallanaglar eins og
Valli Knastás
Halligrímur Magg
Óli Júll
..og fleiri og fleiri hótað að heiðra samkomuna í lengri eða styttri tíma!
Allir velkomnir og öll hjálp velþegin hvort sem menn vilji kíkja í stutta hvatningarheimsókn eða bera olíu á upphandleggi og bryðja íslenskt grjót!
Mætið á svæðið eða hafið samband ef spurningar (bílamál o.s.v).
Hils,
Steppo
Þetta tölvupóstfang er varið gegn ruslpóstsþjörkum, Þú verður að hafa JavaScript virkt til að sjá það.
6641014
Attachments:
Aðeins í boði fyrir innskráða notendur, skráðu þig inn.
Re:Tindfjallaskáli- endurgerð að klárast!
25 jún 2009 21:50 #8757
Skrifað 25 jún 2009 21:50
Enn að bætast í hópinn því Skabbi var líka að melda sig með. Skorum á fleiri að mæta. Herramennirnir í Miðdal hafa ákveðið að lána skálann svo það mun ekki væsa um okkur um helgina....
Attachments:
Aðeins í boði fyrir innskráða notendur, skráðu þig inn.
Re:Tindfjallaskáli- endurgerð að klárast!
26 jún 2009 10:49 #8758
Skrifað 26 jún 2009 10:49
Frábært að sjá þennan mikla áhuga. Ísalp býður í heljarinnar pylsupartí að pólskum sið á laugardagskvöld.
Annars vantar mig far uppeftir á laugardag (og heim á sunnudag). Á einhver laust pláss fyrir þéttvaxinn, kassavanann karlpúng á fertugsaldri?
Bragi Freyr
s.8967979 bragifreyr(hja)gmail.com