Vildi bara prufa nýja vefinn, og óska nýjum vefmönnum til hamingju með flotta síðu. Einnig er vert að þakka Helga Borg f. hans ómetanlegu vinnu við að halda úti vefnum síðan einhvern tímann á síðustu öld. Man eftir fyrsta vefnum sem kom, og spjallinu þar, greinilega barn síns tíma en þó gott skref á þeim tíma. Svo kom síðasti vefur sem var þvílík lyftistöng, og það segir nokkuð til um gæði þeirrar síðu hvað hún var lengi í notkun óbreytt.
En nú eru nýjir tímar og maður þarf að fara að venjast nýju útlít.
Klapp á bakið fær Helgi Borg, og þrefalt húrra til handa öllum þeim sem lögðu tíma sinn í nýju heimasíðuna, húrra húrra húrra....nýja stjórnin hefur svo sannarlega lyft grettistaki á klúbbnum á mörgum vígstöðum,
kveðja að sunnan,
Himmi
PS; mátti síðan til með að prufa hvort linkar virka... en tékkið á þessum týndu klifurfélögum
www.thecleanestline.com/2009/06/update-latest-developments-in-the-search-for-climbers-missing-in-china.html#more