Borði
Velkomin, Gestur
Username Password: Remember me
Almennar umræður um menn og málefni, ferðalög og fjallgöngur.
  • Blaðsíða:
  • 1

TOPIC: Hekla - Næfurholt - track

Hekla - Næfurholt - track 06 maí 2009 10:15 #8576

Skrifað 06 maí 2009 10:15
Mig langar að fara inn að Heklu hjá Næfurholti og fara upp og niður á fjallaskíðum. Ég hef bara farið á Heklu af Dómadalsleið.

Er ekki einhver slóði sem hægt er að keyra frá Næfurholti og töluvert inn eftir?

Á einhver track af þeim kafla sem hægt er að keyra?

Kveðja,
- Gummi (gudmundur.johannesson hjá gmail.com)

svar: Hekla - Næfurholt - track 06 maí 2009 12:59 #8577

Skrifað 06 maí 2009 12:59
Það er brú á Rangánni e-h kílómetrum neðan við upptökin og þangað er greiðfær afleggjari af landleiðinni, að mig minnir á móts við suðurenda Búrfells. Þetta er auðrataðri leið en Næfurholtsleiðin um Bjallana þar sem slóðin hverfur algerlega á 1-2 Km kafla.
Slóðirnar sameinast við þrengingu þar sem klöngrast má á ruddan slóða frá 47 sem liggur að Litlu-Heklu.
Það passara að fara úr bænum milli hádegis og kaffis og skíða niður um kvöldmatarleytið, -þá er færið mýkst

svar: Hekla - Næfurholt - track 06 maí 2009 16:43 #8578

Skrifað 06 maí 2009 16:43
Fórum þarna fyrir rúmri viku, þ.e. þessa leið sem Kalli er að tala um. Þetta er seinfarið og það þarf að vera á breyttum jeppa til að komast að litlu Heklu akandi þar sem ennþá er talsverður snjór í veginum.
Er klárlega þess virði, líklega besta skíðaleiðin á Heklu. Hugsanlega hægt að keyra eitthvað inn slóðann á fólksbíl og labba svo yfir hraunið en þá borgar sig að leggja eitthvað fyrr af stað en um hádegi.

kv. Óli Júll
  • Blaðsíða:
  • 1
tók: 0.27 sek