Velkomin, Gestur
Username Password: Remember me
Almennar umræður um menn og málefni, ferðalög og fjallgöngur.
  • Blaðsíða:
  • 1

TOPIC: Viðgerðir á skel - þ.e. vind og vatnsheldum fatnaði

Viðgerðir á skel - þ.e. vind og vatnsheldum fatnaði 05 maí 2009 14:52 #8561

Skrifað 05 maí 2009 14:52
Ég er sérstaklega lunkinn við að gera gat á Cintamani buxurnar mínar og hefur nú tekist að gera samtals fjögur göt á annars frekar nýlegar brækur.

Þrátt fyrir þetta virka buxurnar skrambi vel en myndu væntanlega virka betur ef bætt yrði í götin.

Lumar einhver á húskonuráðum um hvernig best er að laga svona lagað? Mér hefur dottið í hug hjólabætur og vatnshelt teip en grunar að það séu til ívið skynsamlegri lausnir en það...

Allar ábendingar vel þegnar.

svar: Viðgerðir á skel - þ.e. vind og vatnsheldum fatnaði 05 maí 2009 16:37 #8562

Skrifað 05 maí 2009 16:37
Duct teip að innan og utan straujað á og kantskorið!

FIB
Kv,
Freysi

Myndasíðan mín: picasaweb.google.com/freskur/

svar: Viðgerðir á skel - þ.e. vind og vatnsheldum fatnaði 05 maí 2009 17:09 #8563

Skrifað 05 maí 2009 17:09
Hef oft gert við svona með duct teipi að innanverðu og Aquasure gúi að utanverðu, verður fullkomlega vatnshelt en lítur aðeins út eins og einhver hafi misst "barnaefni" á fatnaðinn.

svar: Viðgerðir á skel - þ.e. vind og vatnsheldum fatnaði 05 maí 2009 17:11 #8564

Skrifað 05 maí 2009 17:11
Er sjálfur að gera tilraun með svart tau-teip með plasthúð frá Tesa að mig minnir sem ég fékk í Brynju á Laugavegi. Lúkkar allavega betur en hvíta íþróttateipið :) Virðist tolla ágætlega.

Ég straujaði ekki en þvoði efnið vel og sprittaði áður en ég límdi á. Þannig ættiru að losna við alla fitu og annað ógeð. Passaðu bara að sprittið gufi alveg upp áður en þú heldur áfram. Ef þetta gengur ekki þá prófar maður að strauja.

Ef götin eru stór er vissara að teipa báðumegin, en ég setti nú bara innaná ef þau voru agnarsmá.

Duct teipið virkar líka vel en er bara ekki eins camo og þetta svarta.

- Tribal
_________________

Klifur og fjallamennska: retro.smugmug.com/Climbing

svar: Viðgerðir á skel - þ.e. vind og vatnsheldum fatnaði 05 maí 2009 17:12 #8565

Skrifað 05 maí 2009 17:12

svar: Viðgerðir á skel - þ.e. vind og vatnsheldum fatnaði 05 maí 2009 17:18 #8566

Skrifað 05 maí 2009 17:18
Sammála Gólanum, úretan að utan, duckteip að innan. Úretanið gengur undir ýmsum nöfnum eins og aquasure ofl. - oft ódýrast að kaupa það í veiðibúllum þar sem það gengur undir nafninu "vöðlulím" og kemur í mun stærri túbum en í útivistarbúðum.

svar: Viðgerðir á skel - þ.e. vind og vatnsheldum fatnaði 05 maí 2009 19:22 #8567

Skrifað 05 maí 2009 19:22
ég setti duckteip á buxurnar mínar og fékk svo saumavélina lánaða hjá mömmu og saumaði kantana svo þeir losni ekki.

En þetta eru að vísu hræbillegar draslbuxur, veit ekki hvort ég mundi gera sauma í fínar goretexbuxur.

svar: Viðgerðir á skel - þ.e. vind og vatnsheldum fatnaði 05 maí 2009 19:36 #8568

Skrifað 05 maí 2009 19:36
Glædan... mamma þín hefur saumað þetta fyrir þig ;)
_________________

Klifur og fjallamennska: retro.smugmug.com/Climbing

svar: Viðgerðir á skel - þ.e. vind og vatnsheldum fatnaði 05 maí 2009 22:40 #8569

Skrifað 05 maí 2009 22:40
Duck tape er subbulegt. Það er hægt að kaupa nylonbætur með lími aftaná. Tjaslaði jakkanum mínum saman með svoleiðis og það hefur haldið í nokkur ár. Límir bót utan og innan á. Alveg pottþétt viðgerð.

robbi

svar: Viðgerðir á skel - þ.e. vind og vatnsheldum fatnaði 05 maí 2009 22:41 #8570

Skrifað 05 maí 2009 22:41
Gleymdi að segja að nylonbæturnar fást í saumabúðum.

robbi

svar: Viðgerðir á skel - þ.e. vind og vatnsheldum fatnaði 06 maí 2009 14:44 #8571

Skrifað 06 maí 2009 14:44
Kærar þakkir fyrir glimmrandi góða svörun. Nú er bara að prófa og sjá hvernig virkar.

svar: Viðgerðir á skel - þ.e. vind og vatnsheldum fatnaði 06 maí 2009 20:02 #8572

Skrifað 06 maí 2009 20:02
Dökkteip er ekkert subbulegt nafni, -dökkteip er lífsstíll.

svar: Viðgerðir á skel - þ.e. vind og vatnsheldum fatnaði 06 maí 2009 21:55 #8573

Skrifað 06 maí 2009 21:55
Dökkteip virkar fínt. Ef maður setur nóg af lími undir kanntana í teipinu og þá verður þetta allt í lagi.

svar: Viðgerðir á skel - þ.e. vind og vatnsheldum fatnaði 08 maí 2009 11:51 #8574

Skrifað 08 maí 2009 11:51
Dökkteip er frábært, virkar í öllum sportum.


Og Björgvin ég saumaði sko sjálfur, mömmu og eiginkonunni til mikillar undrunar.

svar: Viðgerðir á skel - þ.e. vind og vatnsheldum fatnaði 09 maí 2009 22:09 #8575

Skrifað 09 maí 2009 22:09
Dökkteipið er málið! Ég á einhverjar rosa fínar gore-tex bætur keyptar í ameríkunni og aldrei notað þær þar sem dökkteiðið er að gera sitt. Ég bætti buxurnar mínar í ferð til bráðabirða, c.a. 1 1/2 ár síðan, kanntskar bút og hitaði örlítið svo með prímusnum og smellti svo yfir gatið að innan og utna (stórt gat), bótin er enn á sínum stað.
  • Blaðsíða:
  • 1
tók: 0.43 sek