Borði
Velkomin, Gestur
Username Password: Remember me
Almennar umræður um menn og málefni, ferðalög og fjallgöngur.
  • Blaðsíða:
  • 1

TOPIC: Aðstæður

Aðstæður 17 apr 2009 11:36 #8524

Skrifað 17 apr 2009 11:36
Sæl,

Bara að láta vita að hér í Skurðinum er enn nægur snjór.
Snjór bæði í fjöllum og skíðasvæðum og alveg niður að sjó...

Ég var á Dalvík og Ólafsfirði í gær í glymrandi veðri og það er fullt af óskíðum fjöllum á svæðinu

Látraströndin flott og Fjörður á kafi í snjó.

...ég veit að það er erfitt að trúa þessu, ...
þar sem ég er að heyra af því að hörðustu skíðarar og ísklifrara eru komnir í vorverkin í garðinum ...og jafnvel búnir að taka fram sláttuvélarnar að minnsta kosti mosatætarann...

... svo er veðurspáin ekkert að skemma fyrir....a.m.k. núna um helgina...um eftir sólvörn 45

swing kveðja Bassi...
...heltannaður eftir páskana...en á langt í land í mössuninni....

svar: Aðstæður 17 apr 2009 19:08 #8525

Skrifað 17 apr 2009 19:08
engar vorvinnugræjur hér enn.

Stefnan sett á Súlur á morgun með brettið. Er samt orðinn skeptiskur á ísklifur, síðast þegar ég fór í ísklifur í hita (6°) fór allt í bölvað rugl.

kv
Jón H

svar: Aðstæður 19 apr 2009 21:32 #8526

Skrifað 19 apr 2009 21:32
Þó að aðstæður séu ekki eins góðar hér fyrir sunnan, er vel hægt að skíða hér ef viljinn er fyrir hendi.

Í stað þess að fara í ræktina á föstudaginn, fór ég á móskarðshnjúkana, það er hægt að skíða langleiðina niður á bílastæði.

Það er snjór á Eyjafjallajökli niður í ca 600m hæð.

svar: Aðstæður 20 apr 2009 10:16 #8527

Skrifað 20 apr 2009 10:16
Segðu meira frá Móskarðshnjúkum - eru aðstæður til að fara upp og niður á skíðunum, hvernig er snjórinn?

svar: Aðstæður 20 apr 2009 10:19 #8528

Skrifað 20 apr 2009 10:19
Fórum á Hátind á fimmtudaginn og það voru fínustu aðstæður...gat ekki séð betur en Móskarðshnjúkar væru líka í aðstæðum. En þetta er allt á síðasta snúning og kæmi mér ekki á óvart að þetta væri búið

Sjá myndir:

picasaweb.google.com/siggiskarp/Hatindur2#5325784155677428498

svar: Aðstæður 20 apr 2009 10:50 #8529

Skrifað 20 apr 2009 10:50
Ágúst:
Ég tók ekki mikið af myndum, en það eru einhverjar hér:
picasaweb.google.com/gudjonbj/Moskardshnjukar#

Var með einn á bretti með mér, þannig að við reyndum að sneiða framhjá snjónum á leiðinni upp. Á leiðinni niður eltum við gilið sem er vestan meginn við svarta-hnjúkinn (veit ekki hvað hann heitir) töluvert langt niður.

Týpískt vorfæri. Snjórinn er á hröðu undanhaldi en ég held að það ætti að vera hægt að skíða út Apríl.

Svo má ekki gleyma öllum norðurhlíðunum, það er t.d. snjór miklu lengur í Eilífsdal/Flekkudal/Eyjadal.

Go for it!

svar: Aðstæður 20 apr 2009 10:50 #8530

Skrifað 20 apr 2009 10:50
Ég veit um hópa hér fyrir norðan sem fóru á;
Kaldbak á Látraströndinni og Hestinn í Skíðadal og skíðuðu niður í fínu færi og frábæru veðri.

kveðja
Bassi

svar: Aðstæður 20 apr 2009 13:38 #8531

Skrifað 20 apr 2009 13:38
Það sem Guðjón kallar svarta hnjúkinn undir Móskarðshnjúkum heitir Bláhnúkur og svo er skíðað niður Skánardal.
Sl. miðvikudag gat ég skíðað frá miðhnúknum og þar til ca. 150 hæðarmetrar voru eftir niður að á. Víða voru tæpar snjóbrýr niður dalinn og snjórinn á hröðu undanhaldi.
Ef menn ætla að fara þetta í vor er eins gött að drífa sig.

Kv, Atli H

svar: Aðstæður 21 apr 2009 12:48 #8532

Skrifað 21 apr 2009 12:48
Fossvogurinn iðar af lífi og allt grænkar hratt.

Birkið er nýklippt og brumar. Áburður kominn á grasflatirnar og styttist í fyrsta slátt.

.... stefnan er þó sett á að kynna sér snjóalög fyrir Norðan nú í Vor :)

Kveðja,
Böbbi
  • Blaðsíða:
  • 1
tók: 0.36 sek