Borði
Velkomin, Gestur
Username Password: Remember me
Almennar umræður um menn og málefni, ferðalög og fjallgöngur.
  • Blaðsíða:
  • 1

TOPIC: Njáls Saga - Skarphéðinn

Njáls Saga - Skarphéðinn 06 apr 2009 09:24 #8475

Skrifað 06 apr 2009 09:24
Tek stundum rúnt á nokkrum vel völdum síðum og fannst það frekar skondið að rekast á þetta (þeas blog frá 4 apríl)

www.highinfatuation.com/blog/

Enjoy,

Himmi

svar: Njáls Saga - Skarphéðinn 06 apr 2009 14:17 #8476

Skrifað 06 apr 2009 14:17
Skemmtilegt!

Verst hvað Skarphéðinn var mikill FÁVITI. Það er ágætt að geta stokkið 12 álnir yfir beljandi fljót en verra að skorta gáfur og skynsemi. Svo var hann líka fokk ljótur! Þeir bræður Njálssynir hefðu mátt hlusta betur á föður sinn og þá hefði farið betur fyrir þeim.

Ætti ég hund myndi ég kalla hann Njál. Svoleiðis hundur myndi örugglega gera allt rétt og hjálpa mér með allar stórar ákvarðanir í lífinu. Hann gæti vissulega verið hárlaus en það yrði ásættanlegur fórnarkostnaður.

Eins og sjá má þá verð mjög æstur yfir Íslendingasögunum enda trúi ég því að þær séu sannar (mun skemmtilegri aflestrar fyrir vikið).

AB

Sárt ertu leikinn Sámur fóstri 06 apr 2009 15:32 #8477

Skrifað 06 apr 2009 15:32
Þú getur bara sjálfur verið ljótur og heimskur, Andri asnalegi!

Hvers vegna í fjandanum nefnir maðurinn ekki hundhelvítið Sámur fyrst hann er á annað borð að nefna hundinn upp úr Njálu? Skarphéðinn er ekkert hundsnafn, andskotinn hafi það!


Skabbi,
sárt leikinn...

svar: Sárt ertu leikinn Sámur fóstri 06 apr 2009 15:52 #8478

Skrifað 06 apr 2009 15:52
Skammastu þín Andri

svar: Sárt ertu leikinn Sámur fóstri 06 apr 2009 16:20 #8479

Skrifað 06 apr 2009 16:20
Ég sé að skapbrestirnir erfast með nafninu!

Þetta eru dæmigerð viðbrögð Skarphéðna nútímans, volandi á veraldarvefnum í eymd sinni og vangetu.

Ef þetta samtal hefði átt sér stað 1000 árum fyrr þá ætti ég von á einu stykki Rimmugýgi í höfuð mér svo stæði í heila.

En nei, Skabbi, ég er ekki hræddur við þig eða Petzl ísaxirnar þínar. Hvað þá að ég óttist Sigga og Charlet Moser axirnar hans, sem þó eru skuggalega nærri Rimmugýgi í aldri.

AB

svar: Sárt ertu leikinn Sámur fóstri 07 apr 2009 09:41 #8480

Skrifað 07 apr 2009 09:41
held ad Pulsarinn hans SiggaSkarp se mun betra verkfaeri til ad kljufa menn i herdar nidur heldur en kvarkinn hans Skarphedins Myramanns (en their eru vist godir drykkjumenn skv. Hlodveri Stor-Magister ad Bjorgum)
  • Blaðsíða:
  • 1
tók: 0.29 sek