Borði
Velkomin, Gestur
Username Password: Remember me
Almennar umræður um menn og málefni, ferðalög og fjallgöngur.
  • Blaðsíða:
  • 1

TOPIC: Styttur opnunartími skíðasvæða höfuðborgarsvæðisins

Styttur opnunartími skíðasvæða höfuðborgarsvæðisins 27 jan 2009 09:24 #7955

Skrifað 27 jan 2009 09:24
Glöggir skíðaiðkendur hafa tekið eftir því að nú um miðjan mánuðinn var auglýstur styttur opnunartími í Bláfjöllum og Skálafelli.
Opnunartími er nú frá kl. 14-20 á virkum dögum í stað til kl. 21. Þykir mörgum þetta súrt og til þess gert að rýra gildi eftir-vinnu skíðunar.
Hef ég ásamt mörugm öðrum sent Magnúsi Árnasyni framkvæmdastjóra skíðasvæðanna áskorun þess efnis um að endurskoða opnunartímana.
Ákvörðunin verður endurskoðuð um mánaðarmótin febrúar/mars og hvet ég að sjálfsögðu alla til að láta í sér heyra vegna málsins.

Enn ein flettismettis-grúppan hefur verið opnuð. Þessi til stuðnings málefninu. Þeir sem vilja skrá sig þar geta flett upp : Lengri opnunartíma í Bláfjöllum og Skálafelli.

Sjáumst í fjallinu.

svar: Styttur opnunartími skíðasvæða höfuðborgarsvæðisins 27 jan 2009 09:52 #7956

Skrifað 27 jan 2009 09:52
Meilið hjá honum er Þetta tölvupóstfang er varið gegn ruslpóstsþjörkum, Þú verður að hafa JavaScript virkt til að sjá það. , cc á Þetta tölvupóstfang er varið gegn ruslpóstsþjörkum, Þú verður að hafa JavaScript virkt til að sjá það. .

Þetta er alveg fáránlegt. Við Andri fórum í síðustu viku, ég fór úr vinnunni rétt rúmlega fimm og við náðum 4 ferðum, sem kostuðu Andra 1300 kall.

Gott að ég var búinn að kaupa árskort (sem er náttúrulega búið að gjaldfella um 50% núna).

:(

svar: Styttur opnunartími skíðasvæða höfuðborgarsvæðisins 27 jan 2009 10:49 #7957

Skrifað 27 jan 2009 10:49
Sammála, væri skynsamlegra að hafa opið frá 15-21 ef þetta er vegna sparnaðar.

Flestir fara á skíði beint eftir vinnu á virkum dögum, þessi auka klukkutími skiptir miklu máli. Tala nú ekki um þegar daginn fer að lengja!

Breyttur opnunartími í Hlíðarfjalli 27 jan 2009 10:57 #7958

Skrifað 27 jan 2009 10:57
Hér fyrir norðan er ekkert nema endalaus sæla, hvítir tindar og hver púðurdagurinn á fætur öðrum. Aðstæður til utanbrautarskíðunar eru með allra besta móti og ástæða til að mæta með hjálm, ýli og stöng ef….

En því miður, við búum við sama ástand og aðrir Íslendingar, skíðasvæðið er lokað á þriðjudögum í vetur og …. skoðið vefmyndavélina í Hlíðarfjalli NÚNA 4 m/sek, -1,8 og ekkert nema hvítur snjórinn og rennilegar brekkur. OG ÞAÐ ER ÞRIÐJUDAGUR!

Ekkert annað í stöðunni en að skella undir sig plönkunum, tölta af stað á tveimur jafnfljótum og vona að með hækkandi sól verði ákvörðunin um lokun á þriðjudögum endurskoðuð.

svar: Breyttur opnunartími í Hlíðarfjalli 28 jan 2009 07:40 #7959

Skrifað 28 jan 2009 07:40
Það eru nú ekki svo mörg ár síðan að það var opið til 22 á kvöldin og maður gat hæglega skellt sér eftir vinnu á skíði og átt góðann skíðadag.

Ef hinn venjulegi dagvinnumaður fer núna eftir vinnu nær hann kannski 2 tímum ef hann er heppinn.

Ekki beint góð þjónusta við skíðamenn þetta

svar: Breyttur opnunartími í Hlíðarfjalli 28 jan 2009 12:37 #7960

Skrifað 28 jan 2009 12:37
kannski hafi opnunartíminn verið skertur til að krakkar nái eins og 1-2 klukkustundum í playstation fyrir svefninn.
ekki eins og í gamla daga þegar maður tók rútuna og var kominn heim kl. 23, og fór beint í bælið.
  • Blaðsíða:
  • 1
tók: 0.36 sek