Borði
Velkomin, Gestur
Username Password: Remember me
Almennar umræður um menn og málefni, ferðalög og fjallgöngur.
  • Blaðsíða:
  • 1

TOPIC: Ólympíska félagið- Tvíburagili

Ólympíska félagið- Tvíburagili 21 jan 2009 20:42 #7907

Skrifað 21 jan 2009 20:42
Danni G. og ég kíktum í Búhamrana, mátuðum okkur við Ólympíska félagið.
Það var ansi blautt í dag og lítið um frost, bergið mjúkt og molnaði soldið niður. Þó var meiri ís heldur en á laugardeginum.
Engin rauðpunktun var farin í dag.

En þó var skemmt sér vel, ekkert betra en að vera hundblautur eftir sturtu hangandi á vegg.

Myndir má finna á:
www.facebook.com/photo.php?pid=30276411&id=1111513739

svar: Ólympíska félagið- Tvíburagili 21 jan 2009 21:44 #7908

Skrifað 21 jan 2009 21:44
Góðir.
Enginn er verri þótt hann sé perri, já og vökni líka.

svar: Ólympíska félagið- Tvíburagili 21 jan 2009 23:03 #7909

Skrifað 21 jan 2009 23:03
Hvað með þá sem eru ekki inni á facebook???
Ég mun aldrei þangað inn því maður þarf að skrá sig og ég geri ekki slíkt.
Olli

svar: Ólympíska félagið- Tvíburagili 21 jan 2009 23:11 #7910

Skrifað 21 jan 2009 23:11
hehe... ánægður með þig Olli að láta helvítis snoppuskrudduna vera !
kv, Gummi
www.climbing.is

svar: Ólympíska félagið- Tvíburagili 21 jan 2009 23:37 #7911

Skrifað 21 jan 2009 23:37
Gaman að heyra af þessu. Við Freysi fórum í bíltúr upp að Búahömrum en ákváðum að við ættum betra skilið en bleytuklifur (lesist: vorum latir) og snérum við.

Svo viljum við helst ekki klifra nema það séu að lágmarki tveir professional ljósmyndarar á svæðinu.

Kveðja,

AB

svar: Ólympíska félagið- Tvíburagili 21 jan 2009 23:56 #7912

Skrifað 21 jan 2009 23:56
Jamm þetta var fínasti dagur í Búhömrum þrátt fyrir bleitu. Gaman að hafa svona mettnaðarfullt verkefni nærri bænum. Verður klárlega kláruð fljótlega : )

Nokkrar myndir komnar inn.
danni.123.is/album/default.aspx?aid=132672

Kv Danni G
  • Blaðsíða:
  • 1
tók: 0.30 sek