Borði
Velkomin, Gestur
Username Password: Remember me
Almennar umræður um menn og málefni, ferðalög og fjallgöngur.
  • Blaðsíða:
  • 1

TOPIC: Nýrr ársrit ÍSALP

Nýrr ársrit ÍSALP 09 jan 2009 08:24 #7792

Skrifað 09 jan 2009 08:24
Ætlaði mér fyrir löngu að vera búinn að hrósa nýju ársriti ÍSALP sem fann loks leið sína til mín. Virkilega skemmtilegt blað með góðu jafnvægi í efnistökum og hlutfalli milli texta og mynda. Málfar og framsetning prýðileg og af allt öðrum klassa en ýmis dæmi eru um af þessum vettvangi. Besta mál.

Nýárskveðja frá Lúxemborg,

Skúli

Nýtt ársrit ÍSALP 09 jan 2009 10:28 #7793

Skrifað 09 jan 2009 10:28
Ánægjulegt að póstferlið taki ekki nema 3-4 mánuði þarna til Lúx... :)
Þetta kom nefnilega úr prentun um miðjan september og sent til félaga fljótlega þar eftir.

En fyrir hönd ritnefndar þakka ég hrósið og auglýsi eftir efni í nýtt blað sem kemur væntanlega með haustinu.

svar: Nýtt ársrit ÍSALP 09 jan 2009 17:33 #7794

Skrifað 09 jan 2009 17:33
fær maður ekki eintak - borgaði að vísu seint en.....

svar: Nýtt ársrit ÍSALP 09 jan 2009 21:45 #7795

Skrifað 09 jan 2009 21:45
Vísa þessu til stjórnar.
Ritnefnd skilaði þessu af sér í kassavís eftir prentun og stjórn sá um að senda þetta á félagsmenn. Þekki ekki ferlið ef menn voru ekki búnir að greiða fyrir gjalddaga.

svar: Nýtt ársrit ÍSALP 10 jan 2009 00:55 #7796

Skrifað 10 jan 2009 00:55
Að sjálfsögðu fá allir sem greitt hafa árgjaldið sent ársrit og félagsskírteini.
Það getur þó tekið smá tíma þar sem yfirleitt hafa verið send fleiri eintök í einu og því safnað saman nokkrum.
Endilega látið okkur vita á Þetta tölvupóstfang er varið gegn ruslpóstsþjörkum, Þú verður að hafa JavaScript virkt til að sjá það. ef þið hafið borgað og ekki fengið sent ritið. Veit að við höfum fengið slatta endursendan þar sem við höfðum ekki rétt heimilisfang.

kv.

svar: Nýtt ársrit ÍSALP 10 jan 2009 11:52 #7797

Skrifað 10 jan 2009 11:52
Jú.. ég borgaði daginn eftir að þessu var dreift fyrr 3-4 mánuðurðm og hef ekkert eintak né skírteini fengið :(

Kv.
Arnar

svar: Nýtt ársrit ÍSALP 10 jan 2009 12:10 #7798

Skrifað 10 jan 2009 12:10
arnar ég er með þitt það fór á vitlaust heimilisfang.

svar: Nýtt ársrit ÍSALP 11 jan 2009 10:43 #7799

Skrifað 11 jan 2009 10:43
Já ég næ ekki að breyta heimilisfanginu hjá mér hér á vefnum en allavegna þá má endilega senda þetta á Öldugötu 15, 220 Hafnaf. :)

Kv.
Arnar

svar: Nýtt ársrit ÍSALP 17 jan 2009 06:57 #7800

Skrifað 17 jan 2009 06:57
Snilldarblað, og mikið hrós til ritnefndar f. frábær störf.

Blaðið rataði alla leið til Ástralíu og skapað margar ánægjustundir,

From Down Under,

Gimp
  • Blaðsíða:
  • 1
tók: 0.36 sek