Borði
Velkomin, Gestur
Username Password: Remember me
Almennar umræður um menn og málefni, ferðalög og fjallgöngur.
  • Blaðsíða:
  • 1

TOPIC: Ískönnunarleiðangur Íslenskra Fjallaleiðsögumanna

Ískönnunarleiðangur Íslenskra Fjallaleiðsögumanna 31 des 2008 12:24 #7764

Skrifað 31 des 2008 12:24
Ískönnunarleiðangur Íslenskra Fjallaleiðsögumanna

Úrdráttur:
Eyðileggingin er nánast alger. Örfáar línur í Múlafjalli eru líklega klifranlegar. Eilífsdalur er eins og við er að búast enn í aðstæðum. Öllum leiðum þar er ógnað af gríðarstórum hengjum.

Dagsetning:
31.12.08

Leiðangursstjóri:
Ívar F. Finnbogason

Skipstjóri:
Ívar F. Finnbogason

Fyrst stýrimaður:
Ívar F. Finnbogason

Yfir Bryti:
Ívar F. Finnbogason

Yfir háseti:
Ívar F. Finnbogason

Skýrsla:
Dragháls:
Allir fossar opnir og erfitt að komast upp úr þeim á ís.

Múlafjall:
Nokkrar auðveldar leiðir líklega enn klifranlegar.

Brynjudalur:
Ýringur – ekki til staðar.
Orion – Opin og líklega óklifranlegur.

Eilífsdalur:
Mikill ís en einnig stórar hengjur sem virðast úr fjarlægð nokkuð nýlegar.

Vesturbrúnir:
Mögulega lítilháttar ís í Anabasis.

Múlafjall:
Eyðilegging alger.

Grafarfoss:
Einhver ís eftir, líklega ekki klifranlegt að svo stöddu.

Tillögur til úrbóta:

Skammtíma lausnir:
Halda suður á bóginn. Beita Hálfdán þvingunum.

Langtímalausn:
Hafa hrókaskipti á starfsliði og stjórn Seðlabanka Íslands og Veðurgerðar Íslands. Slíkt myndi leiða til raunhæfari efnahagsspáa og bjartsýnni veðurspáa.

Aðrar athugasemdir:
Gleðilegt nýtt ár!

Fyrir hönd leiðangurstjórnar,
Ívar F. Finnbogason
picasaweb.google.com/ivarfinn

svar: Ískönnunarleiðangur Íslenskra Fjallaleiðsögumanna 31 des 2008 18:35 #7765

Skrifað 31 des 2008 18:35
Gleðilegt nýtt ár sömuleiðis.

Byrjum bara nýja árið á því að pota öxunum í grjót.

Ási

svar: Ískönnunarleiðangur Íslenskra Fjallaleiðsögumanna 01 jan 2009 18:56 #7766

Skrifað 01 jan 2009 18:56
Á þessum kortum má sjá hvað veldur:
www.vedur.is/vedur/spar/atlantshaf/#teg=hiti

Hæðarkerfi situr sem fastast suður og austur af Íslandi. Hæðirnar snúast sem kunnugt er réttsælis um sjálfan sig og þetta kerfi dælir því heitu lofti yfir Ísland. Það kólnar ekki verulega fyrr en kerfið gefur sig hvenær sem það verður.

svar: Ískönnunarleiðangur Íslenskra Fjallaleiðsögumanna 01 jan 2009 20:37 #7767

Skrifað 01 jan 2009 20:37
Úff, ég veit ekki hvort ég vildi vera messagutti á skipi með sjálfan Hardcore í öllum æðri stöðum!:)

Þetta er óneitanlega skemmtilegasti pistill um lélegar aðstæður sem ég hef lesið.

Gleðilegt nýtt ár.

Kveðja,

AB

svar: Ískönnunarleiðangur Íslenskra Fjallaleiðsögumanna 02 jan 2009 12:26 #7768

Skrifað 02 jan 2009 12:26
HELVÍTIS
FOKKÍNG
FOKK!

Glegðilegt ár strákar og stelpur, þetta getur ekki annað en batnað héðan af. Þaggi?

Skabbi
  • Blaðsíða:
  • 1
tók: 0.28 sek