Borði
Velkomin, Gestur
Username Password: Remember me
Almennar umræður um menn og málefni, ferðalög og fjallgöngur.
  • Blaðsíða:
  • 1

TOPIC: gott verður - enginn ís ??

gott verður - enginn ís ?? 13 nóv 2008 08:11 #7429

Skrifað 13 nóv 2008 08:11
Hvað skal gera þegar er gott verður, of kalt til að fara í Stardal eða í Valshamar og samt enginn ís sjáanlegur?

Hér er ein hugmynd:

picasaweb.google.com/gudjons/Heljaregg#

picasaweb.google.com/ivarfinn/Heljareggin_VanmetinKlettalei#

Besti klifrarinn er sá sem skemmtir sér best, síðasta þriðjudag vorum það ég, Viðar og Guðjón!
picasaweb.google.com/ivarfinn

svar: gott verður - enginn ís ?? 13 nóv 2008 08:26 #7430

Skrifað 13 nóv 2008 08:26
Heljareggin er alger snilld. Það er bara þannig!

Hvetjandi myndir verð ég að segja!

Hils,
Steppo

svar: gott veður - enginn ís ?? 13 nóv 2008 09:40 #7431

Skrifað 13 nóv 2008 09:40
Verður = veður. Feitir puttar!
picasaweb.google.com/ivarfinn

meira dót - meira dót. 13 nóv 2008 10:27 #7432

Skrifað 13 nóv 2008 10:27
Já og svo svona smá fyrir græju kallinn í okkur öllum (græju kallinn er líka í ykkur stelpur - hann er bara öðrvísi á litinn).

www.omegapac.com/op_products_linkcams.html

Guðjón lumaði á þremur af þessum elskum - og það er ekki lygi, þetta er tær snild.

Kosta bara "arm & a leg" en ef maður á svona er engin þörf fyrir hendur eða fætur!

En nú er komið gott af að skrifast á við sjálfan sig.

Yfir og út,

Softarinn!
picasaweb.google.com/ivarfinn

svar: meira dót - meira dót. 13 nóv 2008 23:58 #7433

Skrifað 13 nóv 2008 23:58
Takk fyrir þetta....hressandi myndir :) Þessi leið er á listanum! Horfi alltaf þarna upp þegar ég keyri fram hjá. Hef heyrt og séð mikið af myndum af henni og veit að hún er líklegast klassiker ;) en hvernig er bergið/tryggingar og slíkt.... er þetta betra/verra en t.d. Hraundranginn? Er kannski til topo af henni?
kveðjur úr Hjaltardalnum
Öddi

svar: meira dót - meira dót. 14 nóv 2008 08:17 #7434

Skrifað 14 nóv 2008 08:17
Sæll

Tryggingar eru fullnægjandi miðað við erfiðleika. 1. auka spönnin er sú eina sem talist getur tæp (ég tók einu sinni 4m fall í henni). Flestir kjósa líklega að sleppa henni.

Sum staðar er smá run-out en þá er klifrið líka mjög auðvelt.

Þú finnur allar upplýsingar um þessa leið og aðrar klassískar klettaleiðir í leiðarvísi ÍSALP um Esjuna sem er annað hvort hægt að nálgast í KH eða á miðvikudögum hjá Ísalp.

kv.
Softarinn
picasaweb.google.com/ivarfinn

svar: meira dót - meira dót. 14 nóv 2008 09:23 #7435

Skrifað 14 nóv 2008 09:23
Hæ,

Ég myndi segja að bergið væri betra en Hraundranginn. Leiðin er í sjálfu sér auðrötuð - fylgir hryggnum upp á topp. Eina vesenið er blábyrjunin. Halda sér hægra megin (sunnan) við hrygginn í byrjun.

Hils,
Steppo

svar: meira dót - meira dót. 14 nóv 2008 22:24 #7436

Skrifað 14 nóv 2008 22:24
Kúl flottir ekki slæmur þriðjudagur...
kveðja úr rigningunni í GB
Haukur
  • Blaðsíða:
  • 1
tók: 0.35 sek