Borði
Velkomin, Gestur
Username Password: Remember me
Almennar umræður um menn og málefni, ferðalög og fjallgöngur.
  • Blaðsíða:
  • 1

TOPIC: Allt komið á kaf

Allt komið á kaf 26 okt 2008 10:28 #7375

Skrifað 26 okt 2008 10:28
Má til með kjafta frá þessum frábæru skíðaaðstæðum sem hrunið hafa af himnum ofan hér í norðri síðustu daga. Skíðasvæðið á Dalvík opnaði í 2 tíma í gær og opnar aftur 3 í dag. Erfitt var að renna sér sökum púðurs og kvörtuðu snjóbrettaunnendur yfir því að hafa ítrekað stoppað og fest sig í herlegheitunum.

Við íbúar Skíðadals erum þó ekki bjartsýn á að fá að njóta hamingjunnar í dag vegna ófærðar því hér hefur snjóað látlaust síðustu daga.

Þannig að allir sem eru í sorg og sút vegna atvinnumissis eða hruni á verðbréfamarkaði geta farið að brosa aftu og gerst bara skíðarónar fyrir norðan.

svar: Allt komið á kaf 26 okt 2008 13:08 #7376

Skrifað 26 okt 2008 13:08
En gaman að heyra Helga!

já ég held að maður þurfi að koma sér norður hið fyrsta og gerast tímabundinn skíðaróni!

Vonandi komist þið úr dalnum fljótlega.
  • Blaðsíða:
  • 1
tók: 0.29 sek