Borði
Velkomin, Gestur
Username Password: Remember me
Almennar umræður um menn og málefni, ferðalög og fjallgöngur.
  • Blaðsíða:
  • 1

TOPIC: Utanbrautarbandalag Ísalp

Utanbrautarbandalag Ísalp 21 okt 2008 11:54 #7316

Skrifað 21 okt 2008 11:54
Vildi bara taka ofan fyrir þeim sem áttu hugmyndina að utanbrautarbandalaginu, þ.e. félagskap fjallaskíðara/snjóbrettara Ísalps. Ég er sjálfur alveg að fara að að byrja á sportinu og því frábært að vita af þessum vettvangi.

Gagni ykkur vel.

P.S. hvernig væri annars ef allir áhugasamir um fjallaskíðun kvitti hér, svo maður fá smá tilfinningu fyrir fólki og fjölda?

Kv. Ágúst Kr.

svar: Utanbrautarbandalag Ísalp 21 okt 2008 12:03 #7317

Skrifað 21 okt 2008 12:03
líst vel á þetta

fékk mér fjallaskíði í vor og er að byrja í þessu.

kv. Gummi St.
kv, Gummi
www.climbing.is

svar: Utanbrautarbandalag Ísalp 21 okt 2008 12:32 #7318

Skrifað 21 okt 2008 12:32
Já sammála! Gott framtak!

Fjölmargir sem hafa áhuga á þessu en allt of fáir sem stunda þetta...

Rúmlega helmingur þeirra sem eru að óska eftir búnaði hér á síðunni eru að leita eftir fjallaskíða-græjum. Það er dauðasynd að liggja á þessum græjum ef maður er ekki að nota þær.

Mætum sem flest þann 5. nóv á prepp-kvöldið og setjum saman skemmtilega dagskrá/plan fyrir veturinn!

svar: Utanbrautarbandalag Ísalp 21 okt 2008 13:09 #7319

Skrifað 21 okt 2008 13:09
Flott framtak. ég mæti!!

kv. Smári

svar: Utanbrautarbandalag Ísalp 21 okt 2008 13:13 #7320

Skrifað 21 okt 2008 13:13
Mjög gott mál - ég mæti.

svar: Utanbrautarbandalag Ísalp 21 okt 2008 13:45 #7321

Skrifað 21 okt 2008 13:45
Talandi um græjur... á einhver stífa skó fyrir fjallaskíðun, stærð 42-43? Skór sem myndu passa á Dinamir Freeride bindingar.

Ágúst Kr.
824-5846
agusts(hjá)internet.is

svar: Utanbrautarbandalag Ísalp 21 okt 2008 13:59 #7322

Skrifað 21 okt 2008 13:59
Ég mæti.

svar: Utanbrautarbandalag Ísalp 21 okt 2008 16:02 #7323

Skrifað 21 okt 2008 16:02
Frábært! Ég er game. Er á einplönkungi og burðast með hann á bakinu. Er að spá í að fjárfesta í tvítóla græjum þegar rúblurnar koma ;)
kv.Öddi
PS. Fullt af flottum línum hérna í Hjaltardalnum og nokkrar að komast í aðstæður :)

svar: Utanbrautarbandalag Ísalp 21 okt 2008 16:09 #7324

Skrifað 21 okt 2008 16:09
stuðSTUÐ.
held að stofnun Utanbrautarbandalagsins hafi þegar komið smá snjó í kortin.

maður er farinn að vonast til að komast brátt í snjó einhvers staðar.

hvet alla þá sem eru staddir þar sem snjórinn er að falla að pósta hér á síðuna um aðstæður. aldrei að vita nema maður mæti á svæðið.

svar: Utanbrautarbandalag Ísalp 21 okt 2008 17:12 #7325

Skrifað 21 okt 2008 17:12
Er ein af byrjendunum og líst rosalega vel á þetta framtak..

svar: Utanbrautarbandalag Ísalp 21 okt 2008 21:55 #7326

Skrifað 21 okt 2008 21:55
Líst mjög vel á!

Kveðja Nils

svar: Utanbrautarbandalag Ísalp 21 okt 2008 22:17 #7327

Skrifað 21 okt 2008 22:17
líst vel á þetta. fullt af fólki. Nú er bara að koma vetrardekkjunum á bílinn og laga rispur.

svar: Utanbrautarbandalag Ísalp 22 okt 2008 09:21 #7328

Skrifað 22 okt 2008 09:21
já Sveinborg ég held svo sannarlega að stofnun UBB hafi komið snjónum af stað.... vííííííí!

svar: Utanbrautarbandalag Ísalp 22 okt 2008 12:57 #7329

Skrifað 22 okt 2008 12:57
Flott mál.

Sveinborg, það var fullt af snjó í garðinum mínum í morgun.

Ágúst, ég er með skó handa þér, bjallaðu á mig í síma 694-1198

kv. Doddi

svar: Utanbrautarbandalag Ísalp 22 okt 2008 14:24 #7330

Skrifað 22 okt 2008 14:24
Frábært framtak!

svar: Utanbrautarbandalag Ísalp 22 okt 2008 15:17 #7331

Skrifað 22 okt 2008 15:17
Gott mál... Stimpla mig hér með inn sem hliðarrennslismaður í grunninn en opinn fyrir annars konar rennsli í neyð :)

svar: Utanbrautarbandalag Ísalp 22 okt 2008 15:57 #7332

Skrifað 22 okt 2008 15:57
Telemarkari og til í tuskið.

svar: Utanbrautarbandalag Ísalp 23 okt 2008 12:46 #7333

Skrifað 23 okt 2008 12:46
skidalvik.is/news.php

Ef veðurspár ganga nokkurnvegin eftir núna um helgina þá heyrði ég útundan mér að þeir á Dalvík ætli að reyna opna fljótlega eftir helgi. Eins og segir í nýjustu fréttinni á síðunni þeirra var hægt að renna sér í gær (21.okt)

Ég er til í þetta bandalag

svar: Á skíði um helgina 23 okt 2008 18:24 #7334

Skrifað 23 okt 2008 18:24
Flott framtak. Úr Bláfjöllum er það hins vegar það að frétta að í gær (22 okt.) setti niður það mikinn snjó að menn hættu að komast um á jeppa og því skipt yfir á vélsleða. Í dag hefur svo bætt allmikið í og meiru spáð. Það lítur því út fyrir að menn geti fundið sér ágætis lænur til að skíða í um helgina. Þess ber þó að geta að allt almennilegt undirlag (gamlan veðraðan snjó og ís) vantar og því víða stutt niður á grjót.

Kv. Árni Alf.

svar: Á skíði um helgina 23 okt 2008 19:34 #7335

Skrifað 23 okt 2008 19:34
Hlakka til að sjá ykkur öll hérna fyrir norðan uppá fjöllum á skíðum eða bretta ;)

svar: Á skíði um helgina 24 okt 2008 14:22 #7336

Skrifað 24 okt 2008 14:22
Með, hvort sem það eru lausir eða fastir hælar.

Spurning að legga til helgi, eða helgar, fyrir hittings á góðum svæðum á komandi vetri? Rúnar getur t.a.m. tekið á móti okkur á Ólafsfirði næsta vor :)

Kv.
Böbbi
  • Blaðsíða:
  • 1
tók: 0.53 sek