Borði
Velkomin, Gestur
Username Password: Remember me
Almennar umræður um menn og málefni, ferðalög og fjallgöngur.
  • Blaðsíða:
  • 1

TOPIC: Árbókin

Árbókin 02 okt 2008 20:58 #7255

Skrifað 02 okt 2008 20:58
Var að fá árbókina í hendurnar eftir langt ferðalag hennar með póstinum frá stórborginni og hingað norður á hjara veraldar.
Verð að óska öllum þeim sem komu að gerð bókarinnar til lukku með hana, hún er GRÍÐARLEGA vel heppnuð þið eigið öll hrós skilið.

kv úr Ólafsfirði, Rúnar

svar: Árbókin 03 okt 2008 09:32 #7256

Skrifað 03 okt 2008 09:32
Sammála síðast ræðumanni. Stafrænt klapp á bakið á ritnefnd frá mér. Allir þeir sem lögðu til orð og myndir fá einnig klapp fyrir vel unnin störf!

Myndasíðu opnan aftast er virkilega skemmtileg hugmynd og þær greinar sem ég er búinn að lesa skemmtilegar og vel skrifaðar. Frábært orkuskot svona þegar veturinn virðist vera við það að skella á - fallegt úti í dag!

Takk fyrir mig!

kv.
Ivar
picasaweb.google.com/ivarfinn

svar: Árbókin 03 okt 2008 10:47 #7257

Skrifað 03 okt 2008 10:47
Tek undir þetta - frábært ársrit og verður greinilega betra og betra. Fyrstu þrjár greinarnar eru gargandi snilld, en ég hló upphátt þegar ég las af sólóklifri Karls I og a fetlalausa strútseggjaeista-ísklifrið hans Skabba.

Keep up the good work!

Kv. Ágúst Kr.

svar: Árbókin 03 okt 2008 14:45 #7258

Skrifað 03 okt 2008 14:45
Get tekið undir þetta. Frábært rit og þeim til sóma sem það unnu. Bæði góðar greinar og gott myndmál.

Kv. Sigurður.

svar: Árbókin 03 okt 2008 21:02 #7259

Skrifað 03 okt 2008 21:02


Við í ritnefnd þökkum kærlega fyrir hólið. Það er talsverð vinna sem liggur á bak við ársritið þannig að það er alltaf gaman að sjá að það falli í kramið.

Eins og ég hef margoft sagt áður þá eruð það þið, félagar í klúbbnum sem gerið ritið skemmtilegt. Haldið áfram að senda okkur myndir og greinar, þannig verður ársritið ennþá betra að ári.

Takk

Allez!

Skabbi

svar: Ársritid 04 okt 2008 10:06 #7260

Skrifað 04 okt 2008 10:06
Hallo

Fanta fint arsrit!

Gaman ad thvi hvad myndirnar er i godar, fyrirtaks landslags og kumpanlegir kappar a ferd.

Thetta verdur manni aeggjan um ad gripa pennan og hripa nu eitthvad nidur a blad fyrir naesta arsrit - tho eg se nu annaladur letingi...

Takk
Halli

svar: Ársritid 05 okt 2008 21:32 #7261

Skrifað 05 okt 2008 21:32
Fantafínt ársrit!

Takk fyrir mig,
Steppo
  • Blaðsíða:
  • 1
tók: 0.22 sek