Borði
Velkomin, Gestur
Username Password: Remember me
Almennar umræður um menn og málefni, ferðalög og fjallgöngur.
  • Blaðsíða:
  • 1

TOPIC: Styrkir til klifurs

Styrkir til klifurs 09 sep 2008 12:43 #7199

Skrifað 09 sep 2008 12:43
Hæ allir.
Veit einhver um eitthvert fyritæki sem er til i að styrkja apa eins og mig?
æfinga ferðir og mót.
það er alltaf gaman ad fá fleiri hugmyndir :)

ó,,, Og áfram mixklifur á íslandi.

svar: Styrkir til klifurs 09 sep 2008 20:23 #7200

Skrifað 09 sep 2008 20:23
Ég tek líka við styrkjum og öðrum fjárframlögum frá góðviljuðum aðilum.
Gæti örugglega orðið 9a klifrari ef ég þyrfti ekki að mæta alla daga í vinnu.
:)

svar: Styrkir til klifurs 10 sep 2008 22:07 #7201

Skrifað 10 sep 2008 22:07
Nei, þú ert ekki með þetta, Siggi.

Valdi, mér dettur ekkert sérstakt í hug en skal sannarlega hafa augun opin!

Kveðja,

AB

Afrekssjóður ÍSÍ 14 sep 2008 18:54 #7202

Skrifað 14 sep 2008 18:54
Valdi þú getur kannað hvort þú uppfyllir skilyrði til að sækja um í afrekssjóð ÍSÍ
Nánar: isi.is/?ib_page=107&iw_language=is_IS

Kv,
Gunnz

svar: Styrkir til klifurs 21 sep 2008 06:28 #7203

Skrifað 21 sep 2008 06:28
Já afrekssjóður ÍSÍ er möguleiki, einusinni í öðru lífi man ég eftir að hafa kríað út pening úr þeim og þessi blessaða klifur íþrótt er jafn á skjön við allt og mín var þá virðist vera, best væri ef þú gætir bara athugað hvernig hægt er að breyta klifri í bolta hóp íþrótt og þá ertu á grænni grein hjá ÍSÍ.
Annars myndi ég sennilegast koma saman CV eða ferilskrá um sjálfan mig, fáðu eitthvern til að hjálpa þér með textann svo þetta verði ekki of hógvært eins og við Íslendingar erum vanir að hafa það. Skelltu þér svo í þau fyrirtæki sem hafa eitthvað að gera með klifur og legðu fram tillögu að styrk. Byrjaðu að tala almennt við hann Halldór í Fjallakofanum, hann tekur örugglega vel á móti þér, færðu þig svo fjær kjarnanum eftir það. Gott er að hafa í tillögunni ákveðið tímabil í huga eða ákveðið mót þegar beðið er um styrki, finndu út hver á strák eða stelpu sem hefur áhuga á klifri (sem hangir í Kl.húsinu) og pabbi/mamma þeirra rekur/starfar hjá stærra fyrirtæki pantaðu tíma og kynntu þeim tillögu þína.

Best kannski að hafa í huga að það er nánast full vinna að safna styrkjum og því betur sem þú vinnur að því þeim mun meira færðu borgað.

Bonne Chance
Einar Ísfeld
  • Blaðsíða:
  • 1
tók: 0.46 sek