Borði
Velkomin, Gestur
Username Password: Remember me
Almennar umræður um menn og málefni, ferðalög og fjallgöngur.
  • Blaðsíða:
  • 1

TOPIC: Uppáhaldsfjall?

Uppáhaldsfjall? 25 júl 2008 08:59 #7057

Skrifað 25 júl 2008 08:59
Sumarið hjá mér hefur einkennst frekar mikið af ekki-svo-mikið-harðkjarna þar sem fjallgöngur hafa verið í hávegum höfð og ég reynt að fara á nýtt fjall í hverri viku. Þá styttri fjallgöngur eftir vinnu. Nú er ég kominn í smá þurrð með val á fjöllum/leiðum og datt því að starta hér, að ég held, áhugaverðum þræði.

Hvaða fjallganga/göngur á Íslandi er/u í mestu uppáhaldi hjá þér?

Þó að Ísalp sé meira fyrir harðkjarna umræður þá held ég að við eigum það öll sameiginlegt að fara í fjallgöngur og því gæti þessi þráður orðið kjarngóður og skemmtilegur og hvatt okkur til að rannsaka fjöllin frekar.

Ef ég á að velja eina leið held ég að ég velji göngu upp á Mósskarðshnjúka og síðan göngu yfir alla Esjuna með niðurgöngu við Þverfellshorn. Fór þar fyrir nokkrum árum og hafði mjög gaman af, þá sérstaklega fyrri hlutanum, hjá Móskarði, Laufskarði, Hátindi etc þar sem útsýni niður gilin tvö, í allar áttir, er frábært í góðu verði. Því er eflaust hægt að taka styttri göngu þar en alveg jafn skemmtilega.

Þannig að þetta er tilraun til að starta vinsælasta þræði sumarsins... Svo er bara að sjá hvort það takist.

svar: Uppáhaldsfjall? 25 júl 2008 11:00 #7058

Skrifað 25 júl 2008 11:00
Var að koma til baka eftir að hafa farið fjölskyldu ferð hringinn í kringum landið. Úff hvað það eru flott fjöll þarna fyrir austan. Það var svo sannalega erfit að keyra þarna framhjá Snæfelli, Dyrfjöllum og Herðubreiðinni og fleirri og ekki fara á neitt þeirra. En nóg um það ef ég verð að velja eitthvað þá mundi ég segja að mitt uppáhalds fjall sé Hrútfellstindar, gríðalega flott og skemmtilegt í uppgöngu. Þó ef við erum að tala um minni fjöllin þá er Vífilfell og jú Móskarðhnjúkarnir alltaf skemmtilegir þegar maður vill fara í styttri túra.

Kv.
Arnar

svar: Uppáhaldsfjall? 25 júl 2008 15:45 #7059

Skrifað 25 júl 2008 15:45
Skarðatindur

kv.
Hardcore
picasaweb.google.com/ivarfinn

svar: Uppáhaldsfjall? 25 júl 2008 16:18 #7060

Skrifað 25 júl 2008 16:18
Kristínartindar

: )

svar: Uppáhaldsfjall? 25 júl 2008 18:12 #7061

Skrifað 25 júl 2008 18:12
Helgafell

) :

svar: Uppáhaldsfjall? 25 júl 2008 23:20 #7062

Skrifað 25 júl 2008 23:20
Hlöðufell, þar má segja að minn fjallamennsku"ferill" hafi byrjað eftir blauta og kalda nótt á fjallinu.

svar: Uppáhaldsfjall? 26 júl 2008 20:20 #7063

Skrifað 26 júl 2008 20:20
Það eru til ótrúlega mörg falleg og skemmtileg fjöll á Íslandi. Ég á erfitt með að segja til um það hvað sé það besta og flottasta en það fjall sem ég lenti í einu skemmtilegasta útsýni á var Þuríðartindur. Svo eru fjöll eins og Herðubreið, Snæfell, Jörvi, og svo framvegis.
Olli

svar: Uppáhaldsfjall? 27 júl 2008 10:45 #7064

Skrifað 27 júl 2008 10:45
Það er leiðin frekar en fjallið sem er í uppáhaldi.

Ef við teljum fjölda uppferða þá er það Esjan og svo Skarðsheiðin.

Kv.
Palli

svar: Uppáhaldsfjall? 27 júl 2008 12:24 #7065

Skrifað 27 júl 2008 12:24
Ég hugsa nú að ég hafi komið oftar á Hvannadalshnjúk heldur en Esjuna!!!
Olli

svar: Uppáhaldsfjall? 27 júl 2008 20:04 #7066

Skrifað 27 júl 2008 20:04
Þjóðarfjallið Herðubreið.
-Flottasta skíðabrekkan

svar: Uppáhaldsfjall? 27 júl 2008 22:50 #7067

Skrifað 27 júl 2008 22:50
Háasúla þröngvaði sér inn í hugann. Nú langar mig allt í einu að fara þangað.
Þú ert nú meiri kallinn Ágúst að æsa þetta svona uppí manni.

svar: Uppáhaldsfjall? 28 júl 2008 09:19 #7068

Skrifað 28 júl 2008 09:19
Talandi um Móskarðshnjúka - Þverfellshorn. Ég átti leið þar um vorið 2005 í blííííííðskaparveðri mestmegnis. Skemmtileg leið að labba og tók mig um 6 klukkustundir á rólegheita lötri (ef ég man rétt).

Þegar ég nálgaðist Þverfellshornið skall á svartaþoka svo þykk að minnstu munaði að ég héldi framhjá kringsjánni og niðurgönguleiðinni minni. Heyrði óm af mannamáli sem kom mér á rétta braut.

Tók nokkrar myndir þann daginn.
public.fotki.com/bragiogeyglo/ferdalog/mskarshnjkarverfell/

svar: Uppáhaldsfjall? 28 júl 2008 15:16 #7069

Skrifað 28 júl 2008 15:16
Mér þykir alltaf vænt um Akrafjallið :)
  • Blaðsíða:
  • 1
tók: 0.46 sek