Victory, victory, we have summit!
17 jún 2008 12:59 #6966
Skrifað 17 jún 2008 12:59
Hæ
Í tilefni þjóðhátíðardagsins skelltu Guðlaugur Ingi og félagar sér upp á hæsta fjall Evrópu, Elbrus í Kákasus fjöllum. Ferðin gekk í alla staði vel og stigu þeir á toppinn snemma í morgun í blíðskapar veðri. Við fáum vonandi íburðarmeiri ferðasögu við heimkomuna.
svar: Victory, victory, we have summit!
17 jún 2008 14:36 #6967
Skrifað 17 jún 2008 14:36
Hæ hó jibbbbíjei!! Til hamingju með þetta Gulli og co. Ekki amalegt að halda uppá þjóðhátiðardaginn með þessum hætti. Vænti þess að íslenski fáninn hafi fengið að blakta við þetta tækifæri.
svar: Victory, victory, we have summit!
18 jún 2008 17:41 #6969
Skrifað 18 jún 2008 17:41
Vei! en gaman fyrir ykkur. Myndir og ferðasögur fáum við að sníkja af ykkur við færi.
Annars er greinilegt að Ísalparar hljóta að vera allir utandyra að gera eitthvað uppbyggilegt því annars væru hamingjuóskirnar margafalt fleiri hér á þessum vef :o)
Íslenski alpakúbburinn óskar ykku til hamingju með fjallið og toppinn og vonar að þið eigið næs ferð heim!!