Má til með að koma þessu á framfæri hér því við Eiríkur erum alltaf að leita að skemmtilegu fólki til að fara með út að leika. Það er ekki oft sem maður sér auglýst eftir fólki sem hefur reynslu af íslneskum vetraraðstæðum:
Veðurstofa Íslands óskar eftir að ráða sérfræðing í verkefni sem tengjast snjóflóðarannsóknum á Snjóflóðasetri Veðurstofunnar á Ísafirði.
Umsækjendur skulu hafa háskólamenntun á sviði jarðeðlisfræði, verkfræði, jarðfræði, landafræði eða aðra sambærilega menntun. Góð tölvukunnátta er skilyrði og forritunarkunnátta er æskileg, sem og reynsla af útivist við íslenskar vetraraðstæður. Lögð er áhersla á frumkvæði og sjálfstæð vinnubrögð.
Næsti yfirmaður er útibússtjóri Snjóflóðaseturs Veðurstofunnar á Ísafirði.
Laun eru skv. kjarasamningi fjármálaráðherra og hlutaðeigandi stéttarfélags. Ráðningartímabil verður samkvæmt samkomulagi.
Öllum umsóknum verður svarað, en Veðurstofa Íslands áskilur sér rétt til að hafna öllum umsækjendum. Nánari upplýsingar veitir Harpa Grímsdóttir útibússtjóri í síma 8430413, netfangi
Þetta tölvupóstfang er varið gegn ruslpóstsþjörkum, Þú verður að hafa JavaScript virkt til að sjá það.
, eða á skrifstofunni.
Umsóknum með upplýsingum um menntun og fyrri störf ásamt starfsferilsskrá skal skilað til Snjóflóðaseturs Veðurstofu Íslands, Árnagötu 2-4, 400 Ísafirði, fyrir 11. maí nk.
Nú er um að gera og breyta aðeins til og skella sér vestur í sæluna.
kv
rok