Borði
Velkomin, Gestur
Username Password: Remember me
Almennar umræður um menn og málefni, ferðalög og fjallgöngur.
  • Blaðsíða:
  • 1

TOPIC: Fjallaskíði

Fjallaskíði 03 feb 2008 18:45 #6323

Skrifað 03 feb 2008 18:45
Fjallaskíði, skór og bindingar, hvað eru menn helst að nota ?
Er ekki einhver sem lumar á góðum upplýsingum um þetta allt sama.

svar: Fjallaskíði 04 feb 2008 08:55 #6324

Skrifað 04 feb 2008 08:55
Ég er að nota Atomic Kongur sem ég held að séu skilgreind sem Telemark skíði, Dynafit bindingar og Scarpa Spirit 4 skó. Þessi búnaður hefur reynst mér mjög vel. M.a. var ég viku í Sviss skíðaði bæði á braut og off-piste á þessu og líkaði það vel.

Af fjallaskíðabindingum eru Dynafit léttastar sem er kostur í göngu en aðrar bindingar t.d. Fritschi Diamir líkjast meira hefðbundnum alpaskíða bindingum.

Nokkrir linkar fyrir þig:
www.atskis.com/ - Fullt af upplýsinugm um Alpine Touring og review á vörur.


www.backcountryworld.com/ - Ágætis forum um skó, bindingar og margt fleira t.d. snjóflóð.

svar: Fjallaskíði 04 feb 2008 12:35 #6325

Skrifað 04 feb 2008 12:35
Sæll

Aðalmálið í þessu er að vera í góðum skóm sem henta því sem þú ert aðallega að gera. Endatýpurnar eru annars vegar léttir og mjúkir skór sem henta vel á göngu en eru þá lakari í brekkurennsli og hinn endinn eru mjög stífir skór, oft án göngusóla og henta þeir í freeride aðstæðum og eru því of stífir fyrir þægilega göngu.

Ég fór milliveginn og nota Scarpa Spirit skó. Þeir eru mjög góðir til göngu og henta ágætlega í brekkurennsli. Ég prófaði líka Garmont skó, en þeir virðast vera of breiðir fyrir minn fót. Það réði nokkuð um valið. (www.scarpa-schuhe.de/start/index.php?page=11&child=3&pid=207)

Varðandi bindingarnar, þá mæli ég sterklega með Diamir Fritschi. Þær eru einfaldar, sterkar og auðstillanlegar. Ég hef ekki hitt einn einasta mann í ölpunum sem mælir með Dynafit. Flestir hrista hausinn þegar talað er um þær. Þær eru þó sniðugar og verðugt að skoða þær. Ég efa það ekki að nokkrir hér á spjallvefnum eigi eftir að lofa þær. (diamir.com/en/produkte/freerideplus.html?mid=produkte&sid=freerideplus)

Varðandi skíðin, þá er allur gangur á því hvað fólk er að taka. Allt frá örmjóum touring skíðum upp í feit púðurskíði. Þar fór ég líka milliveginn og tók skíði sem eiga að krossa freeride og touring. (www.blizzard-ski.com/goto/en/produkte/07_08/tourenski/free-adventure/free-pro)

S.s mæli með því að þú veljir skó og bindingar af kostgæfni og prófir þí áfram með skíðin.

svar: Fjallaskíði 04 feb 2008 15:04 #6326

Skrifað 04 feb 2008 15:04
Ég hef ekki hitt einn einasta erlendan fjallaleiðsögumann sem ekki notar Dynafit! Og reyndar á það sama við um flesta þá íslendinga sem vinna á fjalla-skíðum (þeir 4 sem mér dettur í hug í svipinn nota allir Dynafit eftir því sem ég best veit).

Þannig að dauðadómurinn hér að ofan kemur mér furðulega fyrir sjónir.

Annars er víst best að ég tjái mig sem minnst um skíði og skíðagræjur.

Get þó sagt að ég tel 99% líkur á að hægt sé að skíða Eyjafjallajökulinn niður í sundlaug algerlega rispu frítt.

Góða skemmtun,

Ívar
picasaweb.google.com/ivarfinn

svar: Fjallaskíði 04 feb 2008 15:16 #6327

Skrifað 04 feb 2008 15:16
Jæja,

Ég ákvað að kasta sprengju, en sagði þó: "þær eru þó sniðugar og vert að skoða þær". Ekki er rétt að kalla það dauðadóm.

Ég hef samt ekki hitt nokkurn mann í ölpunum sem nota dynafit, enda ekki hitt mjög marga. Hins vegar hafa þeir fjallaleiðsögumenn sem ég hef hitt þar sagt að þeir noti einungis Fritschi. Þetta var það sem ég upplifði.

Það þarf ekkert að segja um gæði bindingana heldur meira um þau "trúarbrögð" sem fyrirfinnast í öllu tækjasporti. Best er að velja það sem manni líst vel á.

Því segi ég eins og Ívar,

Góða skemmtun.

BO

P.s ég er nú ekki í ölpunum dags, daglega og því kannski ekki furða að ég hafi ekki hitt mann á dynafit.

svar: Fjallaskíði 04 feb 2008 15:23 #6328

Skrifað 04 feb 2008 15:23
Ég er að hugsa um að taka Ívar á orðinu og fara á Eyjafjallajökul næstu helgi. Eru einhverjir fleiri að fara?

svar: Fjallaskíði 04 feb 2008 22:49 #6329

Skrifað 04 feb 2008 22:49
Skipti út telemarkinu fyrir fjallaskíði síðasta vor. Keypti mér Black Diamond KiloWatt skíði, Scarpa Spirit 4 skó og Dynafit bindingar.

Get ekki annað sagt að þetta dót hafi allt þrælvirkað hingað til og títtnefndar Dynafit bindingar staðið sig með mikilli prýði....

Ath að það er hægt að kaupa Dynafit í nokkrum útgáfum - frá því að vera meira hugsað fyrir þramm og framleitt úr andefnum yfir í brekkubindingar úr jarðneskum efnum (en samt létt).

Kostur við Spirit 4 skóna er að það fylgir með þeim stífari tunga ef menn vilja stífa skóna enn frekar upp. Veit ekki hvor þetta fylgi með öðrum týpum frá Scarpa eða örðum tegundum almennt.

Hils,
Steppo

svar: Fjallaskíði 05 feb 2008 00:10 #6330

Skrifað 05 feb 2008 00:10
Sæll Stefán

Lagðist í lestur. Hvaða Dynafit bindingar ertu með? Mér sýnast Dynafit TLT Vertical vera ákaflega áhugaverður kostur. Þær eru nokkuð verklegar og fá ágætis dóma.

Scarpa skórnir koma líka með mismunandi innri skóm og getur munað í það minnsta 200 g á reimuðum skóm og thermo innri sokki.


Nóg í bili frá mér. Gaman væri að fá þrennuna (skíði, bindingar og skór) frá fleirum.

svar: Fjallaskíði 05 feb 2008 00:21 #6331

Skrifað 05 feb 2008 00:21
Ég nota BD Havoc, Spirit 3 og Dynafit. Skothelt kombínasjón. Hef sjálfur ekki hitt ,,alvöru" skíðamann sem notar annað en Dynafit. Heyrði af prófi sem gert var í útlandinu um styrkleika bindinga og kom í ljós að Dynafit bindingarnar voru sterkari en Diamir. Sel það þó ekki dýrara en ég keypti það.

Aðalmálið er þó að nota draslið, hvað sem verður fyrir valinu. Ég verð seint talinn bókstafstrúarmaður varðandi skíðabúnað. Nota ennþá tíu ára gömul Tua skíði sem ég fékk á sjöþúsund kall. Finnst reyndar rán að eyða tugum þúsunda í skíði og myndi aldrei gera það sjálfur. Spenna, sædkött...allt kjaftæði og árinni kennir illur ræðari!

BD skíði fást í Fjallakofanum og Scarpa skórnir líka.

Ívar, er ég einn af þessum fjórum fjallaleiðsögumönnum???

Fyrir vestan bara snjóar og snjóar.

Best að fara að sofa enda byrjaður að rugla.

kv
rok
Rúnar Karlsson
href='www.BoreaAdventures.com/' :: href='www.NorthExplorers.is/'

svar: Fjallaskíði 05 feb 2008 04:06 #6332

Skrifað 05 feb 2008 04:06
Black Diamond Kilowatt

Scarpa Spirit 3

Dynafit TLT Cofmfort

Fjallakofinn S: 510 9505
www.fjallakofinn.is

Eina verslunin á Íslandi með metnað og þekkingu hvað varðar fjallaskíðagræjur.

Fjallakveðja frá Kanada

Jökull
Jökull Bergmann
UIAGM Fjallaleiðsögumaður
www.bergmenn.com :: www.arcticheliskiing.com

svar: Fjallaskíði 05 feb 2008 08:09 #6333

Skrifað 05 feb 2008 08:09
Dynafit TLT Comfort - alveg þrælvirka. Mér sýnist Dynifit vera hættir að framleiða þær bindingar en TLT Vertical ST virðast vera sambærilegar.

svar: Fjallaskíði 05 feb 2008 09:16 #6334

Skrifað 05 feb 2008 09:16
Ég er með TLT Vertical og mjóg ánægður.

Ég virðist hins vegar hafa verið svikinn um stífari tunguna í Spirit skónna mína. Ekki eins ánægður með það.

svar: Fjallaskíði 05 feb 2008 11:45 #6335

Skrifað 05 feb 2008 11:45
Jú Rúnar, auðvitað taldi ég þig með!
picasaweb.google.com/ivarfinn

svar: Fjallaskíði 05 feb 2008 12:16 #6336

Skrifað 05 feb 2008 12:16
Þessi umræða minnir um margt þegar maður var 16 ára og þrefaði við Helga Ben á miðvikudagskvöldum inn á Grensásvegi um það hvort gönguskíði eða fjallaskíði væru betri.

Tek undir með Rúnari nota bara draslið sem menn hafa undir höndum eða réttara sagt fótum.



Steppo, er ekki í lagi að eiga telemarkgræjurnar líka? Meir að segja ég á fjallaskíði þó lítið séu notuð þessa dagana.

Árni Alf.

svar: Fjallaskíði 05 feb 2008 13:39 #6337

Skrifað 05 feb 2008 13:39
Jú það má ef menn lofa að nota dótið!

svar: Fjallaskíði 05 feb 2008 14:26 #6338

Skrifað 05 feb 2008 14:26
Skíði eru ofmetin... (nema sem aðkomutæki að klifurleiðum útí rassgati)
Sýniði nú karlmennsku ykkar og látiði sjá ykkur með brýndar axir í fossum landsins.

Robbi

svar: Fjallaskíði 05 feb 2008 15:27 #6339

Skrifað 05 feb 2008 15:27
Lofa hér með Robba að frumfara einhvern íslænu undir Eyjafjöllum áður en ísinn og veturinn er úti. Læt liggja milli hluta hvort hún verður lárétt eða lóðrétt en ég skal setja inn nokkrar skrúfur svo þetta verði löglegt.

Árni Alf.

svar: Fjallaskíði 05 feb 2008 16:00 #6340

Skrifað 05 feb 2008 16:00
Sammála Robba. Skíði eru bara til þess að nota til að komast á milli staða eða renna sér beint úr lyftu.
Olli

svar: Fjallaskíði 05 feb 2008 20:03 #6341

Skrifað 05 feb 2008 20:03
Hum! Hljómar eins og eitthvað sem ég hefði sagt fyrir ekki svo mörgum árum. En nú er maður eldri og vitrari!

Robbi, hvar eru annars þessar myndir? Þýðir ekki að freista okkar svona og láta svo alla hanga í lausu lofti. Get varla beðið eftir að sjá góðar myndir af því hvernig staðfest P6 lítur út í návígi. Úff!
picasaweb.google.com/ivarfinn

svar: Fjallaskíði 05 feb 2008 22:46 #6342

Skrifað 05 feb 2008 22:46
Það verður um leið og myndir fást hjá Gumma til þess að hægt verði að setja saman heilsteipta og flotta myndasýningu.
Ég bíð spenntur eins og allir hinir.
robbi

svar: Fjallaskíði 06 feb 2008 07:50 #6343

Skrifað 06 feb 2008 07:50
Ég er ílla ánægður með ykkur núna, takk fyrir öll svorin og pælingarnar.

svar: Fjallaskíði 18 feb 2008 14:02 #6344

Skrifað 18 feb 2008 14:02
litlar líkur á því að einhver lesi þetta en...

en ég meikaði ekki að kaupa dynafit á feitu skíðin mín.
einfaldlega of gay!
fritschi fyrir hégómagjarna mig takk.

svar: Fjallaskíði 10 feb 2009 02:08 #6345

Skrifað 10 feb 2009 02:08
Gömul svör en virka vel. Mjög góðar lýsingar á hvað er að virka og hvaða búnaður er inni. takk fyrir
  • Blaðsíða:
  • 1
tók: 0.62 sek