Borði
Velkomin, Gestur
Username Password: Remember me
Almennar umræður um menn og málefni, ferðalög og fjallgöngur.
  • Blaðsíða:
  • 1

TOPIC: viðgerðir á Tindfjallaskála um helgina?

viðgerðir á Tindfjallaskála um helgina? 10 des 2007 10:16 #5950

Skrifað 10 des 2007 10:16
Hvernig var það , fór vaskur hópur manna uppeftir um helgina til að dytta að skálanum eins og til stóð?
Ef svo , hvað var gert og þarf meira til svo skálinn standi af sér veturinn með sóma?

svar: viðgerðir á Tindfjallaskála um helgina? 10 des 2007 11:21 #5951

Skrifað 10 des 2007 11:21
Fór ásamt Guttormi yfirsmið í Tindfjöll á sunnudag.

Skipt var um járn á austanverðum suðurvegg. Veggurinn sjálfur var þéttpakkaður af snjó enda var ein járnplatan fokin af honum.

Suðurglugginn var glerjaður og gengið frá opnanlega faginu.

Gengið var frá nýrri innihurð og skálanum læst.

Brotni hringurinn á eldavélinni var tekinn í bæinn og stendur til að koma honum á Rennijón til endurgerðar

Ég legg til að komið verði upp sérstakri síðu fyrir báða skálana.
Þar má birta myndir og gera grein fyrir ástandi og viðhaldi. Einnig er gott að þeir sem koma í skálana setji inn nokkrar línur eftir heimsóknir.

Kalli

svar: viðgerðir á Tindfjallaskála um helgina? 10 des 2007 11:32 #5952

Skrifað 10 des 2007 11:32
Við erum nokkrir að fara uppeftir um næstu helgi og getum tekið hringinn góða með okkur.
Einnig ef það er e-ð sem vantar þá græjum við það.

Siggi

svar: viðgerðir á Tindfjallaskála um helgina? 10 des 2007 16:02 #5953

Skrifað 10 des 2007 16:02
Flott framtak!

SF

svar: viðgerðir á Tindfjallaskála um helgina? 10 des 2007 19:36 #5954

Skrifað 10 des 2007 19:36
Svona á þetta vera.
Svona var þetta alltaf.
Skálinn hefur fylgt okkur alla tíð og mun vonandi gera það áfram.

Flott vinna strákar.

kv.
Palli

svar: viðgerðir á Tindfjallaskála um helgina? 11 des 2007 21:21 #5955

Skrifað 11 des 2007 21:21
Góðir. Tek undir með Palla og fleirum sem vilja halda í skálann. Það væri synd af gefa hann frá sér. Vonandi tekst okkur að mynda stemmingu í kringum skálann.

Verst að ég komst ekki á fundinn góða. Vill gjarnan vera þátttakandi. Skv. síðu klúbbsins er ég í skálanefnd... nefnd sem hefur ekki hisst lengi lengi né verið endurnýjuð um margra ára skeið.

Kristján

svar: viðgerðir á Tindfjallaskála um helgina? 12 des 2007 20:23 #5956

Skrifað 12 des 2007 20:23
Held að það sé kominn tími á fund skálanefndar og blása til áætlunar, tel víst að talsvert að félögum vilji koma að endurreisn skálanna.
Vandamálið er sjálfsagt ekki vilji félaga til starfa heldur eins og alltaf hvernig skuli staðið að fjármögnun.
Væri ágætt ef nefndin og jafnvel félagar settu fram skoðanir sýnar á vef klúbbsins.
Víst er að skálar verða ekki reistir nema fjármagn komi til, því væri ágætt að setja fram áætlun hvernig þeirra skuli aflað.

Nóg í bili
Valli

svar: viðgerðir á Tindfjallaskála um helgina? 13 des 2007 13:51 #5957

Skrifað 13 des 2007 13:51
sæll og takk fyrir síðast,

er ekki málið að byrja á að finna út hversu mikla peninga þarf og svo spá í hvort raunhæft sé að afla þeirra og í framhaldi af því hvernig?

eins og ég kom nokkuð ákveðið frá mér eftir þennan blessaða tindfjallaskálafund þá finnst mér ekki hægt að taka ákvörðun um skálamálin án þess að vera með það á hreinu hvað hlutirnir kosta. ég stakk upp á eftirfarandi:

.kanna hvað kostar að byggja eða kaupa (þess vegna frá Eistlandi eins og Kalli talaði um að mig minnir?) tilbúinn 22 m2 skála sem hægt er að keyra upp í tindfjöll
=> kanna hvort hægt er að afla þeirra peninga.

.kanna hversu mikið þurfi á ári í viðhald á nýja skálanum
=> kanna hvort þeir peningar fáist með betri rekstri skálans, þ.e. hann verði eining sem standi undir sér með því að leigja út helgar og vikur.

.þegar búið er að stilla þessu dæmi upp hlýtur að vera borðleggjandi hvort halda eigi rekstri skálans áfram eða ekki og hvort sjálfboðavinnu þurfi yfir höfuð til að reka skálann með sóma.

----ég skora á stjórn ísalp að hafa frumkvæði að því að setja saman hóp (sem gæti vel verið núverandi skálanefnd) sem skoðar málið frá þessari hlið og kynnir.


friður

svar: viðgerðir á Tindfjallaskála um helgina? 13 des 2007 14:09 #5958

Skrifað 13 des 2007 14:09


Stjórnin mun hittast í næstu viku. Skálamálið verður tekið fyrir á þeim fundi og þá, eins og oft áður, verða ýmsir möguleikar ræddir.

okbæ

Skabbi

svar: viðgerðir á Tindfjallaskála um helgina? 13 des 2007 15:34 #5959

Skrifað 13 des 2007 15:34
Hæ og Hó

Ég óska hér með eftir fundi Stjórnar með Skálanefnd (allri) við fyrsta tækifæri.

KV
Valli
  • Blaðsíða:
  • 1
tók: 0.55 sek